Tíðindi

Loks fær Colosseum andlitslyftingu

  11/12/2012No Comments

Hefði Jesú Kristur náð 75 ára aldri og dottið í hug að valsa aðeins um Róm á þeim tíma hefði hann líklega vitnað verkamenn púsla saman fyrstu hnullungunum í það sem síðar hefur verið þekkt sem Colosseum eða hringleikahúsið í Róm á hinu ylhýra.

Hringleikahúsið í Róm er illa farið eftir veður, vinda og ágengni ferðamanna og ekki seinna vænna að hefja viðgerðir og endurbætur.

Þau tæpu tvö þúsund ár sem hringleikahúsið hefur borið hróður Rómar vítt og breitt hefur farið lítið fyrir viðhaldi eða viðgerðum og ítrekað hafa borist af því fregnir síðustu árin að stór stykki falli reglulega úr byggingunni.

Í sumar sem leið var gerður umdeildur samningur við ítalskan milljarðamæring sem ætlar að punga út verulegum upphæðum til að hægt sé að færa hringleikahúsið í betra horf og áttu viðgerðir að hefjast í haust. Töf varð á því en nú hefur borgarstjóri Rómar tilkynnt að loks verði hafist handa eftir áramótin.

Viðgerðirnar eru sagðar eiga að taka þrjú ár en Ítalir eru snillingar í að toga og teygja hluti og ritstjórn Fararheill giskar á að fjögur til fimm ár sé nærri lagi. Þann tíma munu gestir hringleikahússins því hafa takmarkaðan aðgang þó ekki standi til að loka alveg þó viðgerðir standi yfir.