Ár og dagur er síðan eins lítill snjór hefur sést í hlíðum Klettafjalla í Kolóradó í Bandaríkjunum en helstu skíðasvæðin opnuðu þar formlega fyrir þremur vikum síðan. Nú sér loks fyrir endann á snjóleysinu.

Efst á Aspen fjalli í Kolóradó er rétt nægur snjór til að hægt sé að bruna niður en óvenju lítið hefur snjóað í Klettafjöllunum það sem af er þessum vetri
Reglan undanfarin er hefur verið sú að þegar helstu skíðasvæði á þessu vinsælasta skíðasvæði Bandaríkjanna opna um eða uppúr miðjum nóvember ár hvert hafa flestar brekkur verið vel troðnar af yndislegum púðursnjó. Hefur það þó færst í aukana að snjóskortur geri vart við sig og það átti sér síðast stað fyrir ári síðan.
Nú er sama uppi á teningnum en um helgina snjóaði þó loks duglega í fyrsta skipti í vetur og fékk sérstaklega Aspen vænan skammt af guðsgjöfinni. Hafa nokkur skíðasvæði þar þurft að láta snjóvélar framleiða í brekkurnar og það líkar þeim sem þangað sækja lítið.
Hafa þess vegna nokkrir staðir þegar veitt góðan afslátt á lyftugjöldum enda þau ekki ódýr.
Framundan er enn meiri snjór samkvæmt veðurspám og þá getur fólk áhyggjulaust tekið flugið vestur en eins og Fararheill hefur sagt frá er þessi vetur sá fyrsti sem Íslendingar komast beint á skíði í Denver í beinu flugi.
Hér má fá upplýsingar um snjóalög og færi á hverjum stað fyrir sig og uppfært tvisvar á dag.






