Rússneska flugfélagið Transaero hyggst hefja beint flug milli Moskvu og Keflavíkur næsta vor og stendur til að fljúga hingað tvisvar í viku.
Frá þessu greinir á vef Mbl en Transaero er annað stærsta flugfélag Rússlands og verður annað flugfélagið á skömmum tíma til að bjóða Íslendingum ferðir til Rússlands en Icelandair hefur flug til St.Pétursborgar einnig í vor.
Óumdeilt er að af þessum tveimur áfangastöðum er St.Pétursborg bæði miklu fallegri og mun ódýrari áfangastaður enda óvíða dýrara að vera og gera en í Moskvu.
Flugfélagið rússneska fær ekki ýkja merkilega einkunn hjá flugvefnum Skytraxx. Þar gefa viðskiptavinir félaginu 4,7 í einkunn af tíu mögulegum og fundið að matnum, lítilli afþreyingu um borð og hve gamlar vélar þessu eru.
Á móti kemur að fargjöld þess þykja tiltölulega ódýr og aldrei skal það harmað af hálfu ritstjórnar Fararheill að hér bætast í hóp samkeppnisaðila.







