Raunveruleg afslöppun? Kannski er ráð að leigja sér eitt af átta herbergjum í litlu kothúsi sem gengur undir nafninu Altnaharrie Inn upp á hálendi Skotlands.

Enginn íburður, ekkert sjónvarp, ekkert rafmagn eftir ellefu á kvöldin og enginn matseðill til að velja úr á matartímum. Heillandi? Það versta er samt eftir; þangað verður ekki komist til eða frá nema með báti.

Hvers vegna í ósköpunum erum við að benda á einhvern afdalastað í Skotlandi. Vegna þess að veitingahús það sem rekið var í þessum krúttlega hálendisstað var lengi vel eini veitingastaður Skotlands með tvær Michelin stjörnur. Hann var líka tvívegis valinn besti veitingastaður landsins af skoskum matgæðingum sjálfum.

Það því miður horfin tíð en ennþá má fá hér fyrirtaks mat engu að síður og fróðir segja óvíða betra að gista hér sé ætlunin að stika um fjöll og firnindi Skotlands. Og þar sem ekkert er símasamband eða vegsamband er erfitt að finna betri stað til að slaka 100 prósent á eins og einu sinni.

Altnaharrie Inn er lokaður yfir vetrartímann. Fara verður með báti frá smábænum Ullapool til að komast alla leið.