Alltaf er hætta á því þegar fólk dvelur dögum og jafnvel vikum saman á hótelherbergjum, hótelíbúðum eða heilu villunum erlendis að eitthvað gleymist þegar haldið er heim á leið.
Yfirleitt er það eitthvað smálegt sem engu skiptir máli. Naglaklippur, sósujafnarar, nefhárasnyrtir og annað slíkt sem auðvelt er að endurnýja eða kaupa nýtt í staðinn.
En stundum gleymast ívið merkilegri hlutir en það. Eins og í ljós kemur hjá hótelkeðjunni Travelodge.
Þar á bæ halda menn skrá yfir allt sem fólk gleymir í herbergjum sínum og reynir að koma því til skila sé þess kostur. Og þar var sannarlega að finna undarlegustu hluti árið 2022.
- brjóstapúða
- fimm Power Rangers búningar fyrir fullorðna
- kyrkislangan Monty
- vinningsmiði í evrópska lottóinu
- persneskir kettlingar
- stórt safn frímerkja sem metið er á 52 milljónir króna
- lyklar að dýrustu tegund af Bugatti sportbíl
- þriggja milljóna króna trúlofunarhringur
- tæplega átta þúsund eintök af bókinni 50 gráir skuggar
- gervifætur
Vitaskuld er fólki, sem betur fer, frjálst að vera eins og það vill vera en hugsanlega óþarfi að taka baggana að heiman með í fríið erlendis. Það nefninlega hugmyndin með ferðalögum erlendis að fá oggupons frí frá áhyggjum dagsins heimavið 🙂





