Regluleg ferðalög út fyrir landsteinanna eru lágmarks lífsgæði að mati yfirgnæfandi meirihluta er þótt tóku í nýjustu ferðakönnun Fararheill.is.

Ferðalög eru orðin sjálfsagður hluti af lífi nútíma Íslendsins að mati lesenda Fararheill

Ferðalög eru orðin sjálfsagður hluti af lífi nútíma Íslendsins að mati lesenda Fararheill

Nokkuð hefur borið á gagnrýni í kjölfar bankahrunsins hérlendis á það fólk sem kýs þrátt fyrir það að fara í utanlandsferðir og komast burt augnablik frá daglegu dægurþrasi á klakanum. Ekki aðeins á það við um verslunarferðir til Boston heldur og telja greiningardeildir bankanna Íslendinga almennt gera allt of mikið af því að ferðast með tilliti til að slæmrar stöðu lands og þjóðar.

En þeir hinir sömu gleyma því kannski að þó hún sé lífsseig sagan um hversu skammt er síðan við klöngruðumst hálfbogin út úr moldarkofum þá hefur samfélagið tekið stakkaskiptum síðan og nýjasta könnun Fararheill leiðir í ljós að stór meirihluti telur ferðalög hluta af lágmarks lífsgæðum.

Alls tóku 310 þátt að þessu sinni og niðurstaðan er afgerandi. 81,1 prósent, 251 atkvæði, segja ferðalög lágmarks lífsgæði í nútíma samfélagi meðan 59 telja ferðalög hvers kyns óþarfa lúxus.

Ekki er um vísindalega könnun að ræða en hún gefur vísbendingar um stöðu mála. Ritstjórn þakkar kærlega þátttökuna og bendir á að nýja könnun er nú að finna á vef Fararheill.is