Bjarni Harðarson, bóksali og fyrrum þingmaður, treystir sér alveg til að mæla fullum hálsi með ferðalögum Íslendinga til Kasmírhéraðs á landamærum Indlands og Pakistan en þar ferðaðist hann sjálfur um eftir áramótin.
Þó ekki hafi Kasmír verið sérstaklega í fréttum síðustu árin deila Pakistan og Indland um svæðið og hafa gert lengi og þar voru um tíma töluverðar skærur þjóðanna á milli með tilheyrandi blóðsúthellingum.
Svo er ekki lengur segir Bjarni sem flakkaði um Kasmír og Pakistan eftir áramótin og naut ferðarinnar og segir við Fararheill aldrei hafa komið til þess að hann finndi fyrir ótta eða hræðslu á ferðum sínum. Það er ef frá er talin umferðarmenningin sem sé glæfraleg í meira lagi.
[…] Ég treysti mér alveg til að mæla með og þessvegna skipuleggja ferðalög þangað og upp til Ladakh sem er sérlega spennandi hérað. Ég hef ekki sjálfur komið á þessar slóðir í 30 ár en dóttir mín hefur verið þarna heimagangur undanfarin misseri og við höfum tengiliði þar. Samhliða ferðum til Kasmír mætti alveg koma við í Lahore í Pakistan, og um leið Amritsar, og svo getur það gerst að ástandið lagist uppi í norðvesturhéruðunum og þá er það svæði allt verulega spennandi.
Eins og er þá er samt svoldið erfitt að t.d. skipuleggja hópferðir eftir Karakoram þjóðveginum sem er nú það mest spennandi í Pakistan. Ástæðan er einfaldlega sú að stjórnvöld eru stöðugt að loka einstökum svæðum og þær lokanir eru mjög óvissar, það útilokað að vita um þær fyrirfram og oft útilokað að fá um þær nokkrar upplýsingar fyrr en manni er bara snúið við af duttlungafullum löggum! Ég lenti í svoleiðis uppákomum og það er hvimleitt.
View Þvælingur Bjarna in a larger map






