Ný ferðaskrifstofa opnaði dyr sínar hér á landi í vikunni en þar er um að ræða ferðaskrifstofuna Nazar sem er dótturfélag ferðaskrifstofurisans TUI.
Nazar sérhæfir sig, í það minnsta fyrst um sinn, í sólarferðum til Tyrklands og leggur áherslu á „allt innifalið“ ferðir og rík áhersla lögð á fjölskylduvæn hótel.
Það er dágott að fá meiri fjölbreytni í flóru ferðaskrifstofa hérlendis. Meiri samkeppni þrýstir niður verði á ferðum og lágt verð hefur aldrei skaðað nokkurn mann. En eftir yfirlegu á vef Nazar gætir vonbrigða.
Vonbrigðin felast í að þó um risafyrirtæki í ferðaþjónustuiðnaði sé að ræða er verðlag á ferðum þeirra ekkert til að fara á límingum yfir. Það einfaldlega getur ekki talist „gott“ verð ef fjögurra manna fjölskylda þarf að greiða 675.200 krónur fyrir tveggja vikna dvöl á þriggja stjörnu tyrknesku hóteli utan annatíma eins og sjá má í dæminu hér að neðan.
Þessi ferð Nazar er í boði 28.maí til 11.júní eða aðeins fyrir háannatímann á tyrkneskum ströndum. Sem er í sjálfu sér ekkert slæmt eða neikvætt en ætti að skila sér í lægra verði en ella. Þá má og sjá að flugið er héðan klukkan 22 að kvöldi og því er lent í Antalya klukkan fimm um nóttina. Líklega ekki mikil orka eftir í mannskapnum fyrsta daginn. Þessi brottfarartími er, að því er okkur sýnist, reglan í ferðum Nazar.
Miðað við að tveggja vikna gisting með öllu inniföldu á þessu sama hóteli á sama tíma finnst á hótelleitarvél Fararheill fyrir 337 þúsund krónur er flugið og rúta til og frá flugvelli að kosta fjölskylduna tæplega 339 þúsund krónur að lágmarki. Það þýðir tæplega 85 þúsund krónur á mann. Það eitt og sér er drjúg upphæð á par með tvö börn.
En merkilegt nokk fyrir ferðaskrifstofu sem gefur sig út fyrir að gera vel við barnafjölskyldur er vænlegra fyrir barnlaust par eða hjón að fara með Nazar í vikuferð. Vikuferð 28.maí til 4.júní fyrir tvo og gist með öllu inniföldu á fjögurra stjörnu Club Kastalia kostar parið 198.000 krónur.
Hótelvél Fararheill finnur gistingu þar sama vikutíma ódýrast á 78.144 krónur sem merkir að parið er að greiða tæpar 60 þúsund krónur per haus fyrir flugið. Það er 25 þúsund krónur ódýrara flug en í fyrra dæminu hjá barnafjölskyldunni.
Og hér að neðan tvíbýli á sama hóteli með öllu inniföldu á sömu dagsetningum samkvæmt hótelbókunarvef Fararheill:
Einhver kynni að benda á að óraunhæft sé að bera saman verð á hótelbókunarvef og hjá Nazar en það teljum við alls ekki. Hótelbókunarvélar almennt njóta sjaldan sömu kjara og viðurkenndar og stórar ferðaskrifstofur og nánast hægt að slá föstu að Nazar er að fá herbergi á umræddum hótelum á lægra verði en hér sést.
Þá ber einnig að benda á að allra síðustu árin hafa Heimsferðir, Vitaferðir og Sumarferðir boðið stöku ferðir til Antalya á kjörum sem eru betri en það sem Nazar er að bjóða nú. Varla þarf að deila um að Nazar í eigu TUI getur krafist mun meiri afsláttar en litlar íslenskar ferðaskrifstofur.
Jákvætt er að fá fleiri valmöguleika í ferðalögum og mjög jákvætt að erlendir aðilar sjái sóknarfæri á þessum litla markaði. Nú þarf bara aðila til að koma okkur beint til Portúgal, Ítalíu, Tælands, Malasíu, Mexíkó…..












