Eins og ritstjórn hefur áður bent á er æði mikill fjöldi ferðaskrifstofa á Íslandi miðað við höfðatöluna frægu. Margar þeirra reyndar litlar og lítt þekktar en það er mjög oft þar sem finna má aðeins öðruvísi ferðir sem ættu að svala, tímabundið allavega, þorsta þeirra allra ferðaþyrstustu.

Sítrónuhátíð í febrúar eða í fótspor Davíðs Stefánssonar í september? Ýmislegt gott í boði.

Sítrónuhátíð í febrúar eða í fótspor Davíðs Stefánssonar í september? Ýmislegt gott í boði næsta árið.

Fararheill tók saman fimm ferðir sem við hér erum öll sammála um að standa upp úr næstu mánuðina og sala hafin. Þær eru í engri sérstakri röð þessar:

  • SLÓVENÍA OG UNGVERJALAND MEÐ NONNA TRAVEL
      • Um miðjan júní 2014 býður Nonni upp á vænlega ferð um Slóveníu og Ungverjaland. Þar fæst sól og ljúfar strendur í ljúfum bæjum í þokkabót við stopp í vínræktarhéruðum og öðrum heillandi stöðum. Verð liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað en brottför er frá Akureyri og því tilvalið fyrir þá sem ekki nenna suður.
  • PORTÚGAL MEÐ FERÐ.IS
      • Fararheill ELSKAR Portúgal og hefur lengi gagnrýnt harðlega að þangað séu aldrei neinar ferðir í boði. Poppar Ferð.is til bjargar með þriggja daga ferð um páskana 2014, 24.-27. apríl, til höfuðborgarinnar frábæru Lissabon. Með sæmilegu hóteli er pakkinn á 99 þúsund krónur og þykir barasta fínt verð.
  • KRÓATÍA MEÐ ÍSLANDSVINUM
      • Hjá norrænum nágrönnum okkar hafa ferðir til Króatíu undanfarin ár verið svipað vinsælar og ferðir til Spánar. Full ástæða til enda Króatía kjaftfull af ljúfum stöðum sem prófa verður á eigin skinni. Gott verðlag sakar ekki heldur. Íslandsvinir ætla að bjóða í hjólreiðaferð um sveitir landsins og meðal annars gist í fljótabátum. Gott mál í september 2014 en verð liggur ekki fyrir.
  • FRAKKLAND OG ÞÝSKALAND MEÐ BÆNDAFERÐUM
      • Hægt er að gera ferð vel safaríka með því að bjóða ferð á Sítrónuhátíð og það í Cote d´Sur á frönsku rivíerunni. Reyndar gott betur því í þessari ferð í lok febrúar 2014 er flakkað um Þýskaland og Frakkland á rólegan hátt og víða stoppað til að njóta eins og eðlilegt er. Átta dagar á 179.200 krónur er ekki slæm kaup.
  • ÍTALÍA MEÐ SUNNUFERÐUM
      • Hér er merkileg ferð þar sem stefnan er því sem næst tekin um endilangan Ítalíuskagann frá Mílanó og alla leið til Napolí og víða komið við á leiðinni. Hugmyndin er að fylgja í fótspor Davíðs Stefánssonar skálds sem hér þrammaði um mánuðum saman ungur að árum. Fjórtán dagar í ágúst fyrir 384 þúsund krónur.