Það er hundrað prósent laust við að það geti kallast skemmtileg lífsreynsla að sitja í farþegaþotu sem missir annan hreyfilinn yfir miðju ballarhafi. Sem er það sem gerðist á sunnudaginn var þegar vél Icelandair frá Glasgow til Íslands var snúið við eftir hálftíma flug.
Töluvert fór um farþega um borð þegar neyðarkall flugstjórans til flugturnsins í Glasgow heyrðist óvart yfir hátalarakerfi vélarinnar jafnvel þó enginn hefði í raun orðið var við að annar hreyfillinn hefði farið.
Góðu heilli gekk allt vel á bakaleiðinni og lendingin jafn tíðindalaus og Fréttablaðið á mánudegi.
Það sem Fararheill vildi hins vegar koma á framfæri voru prýðileg viðbrögð flugfélagsins eftir lendinguna.
Oft höfum við gagnrýnt Icelandair fyrir að koma miður fram við viðskiptavini en í þessu tilfelli var fólk vart fyrr komið út úr vélinni en ekið var rakleitt á gott hótel þar sem fulldekkað hlaðborð beið fólks. Í þokkabót bauð flugfélagið farþegum öllum gjafabréf þegar farþegar loks komust um borð að nýju.
Við viljum ómögulega setja okkur á háan hest hér hjá Fararheill en slík viðbrögð eru einmitt það sem við höfum bent ferðaþjónustuaðilum á að er allra, allra, allra besta auglýsing hvers fyrirtækis. Með því að gera gott úr slæmu, jafnvel þó það kosti fyrirtækið tíma og peninga, ætti að skila sér í því að allir sem um borð voru í þetta skiptið hika ekki við að fljúga aftur með Icelandair og bera fyrirtækinu góða sögu þegar heim er komið.
Beisik stöff.








