K lóra þarf sér nánast til blóðs á hausnum til að láta sér detta í hug sérstakt aðdráttarafl við borgina Luton í Englandi en staðreyndin er að borgin sú er álíka heillandi fyrir erlenda ferðamenn og Garðabær er hér á landi. Þar er semsagt ekkert sem er þess virði fyrir fólk að sjá eða upplifa og alls ekkert til að gera sér sérstaka ferð eftir.
Þetta er hægt að staðfesta með því einu að fletta upp ómissandi, „must see“, stöðum hjá ferðamálaráði Luton borgar. Þar eru talin upp helstu merkilegheitin og má þar sjá bókasafn bæjarins, nokkrar verslunarmiðstöðvar, lista yfir golfvelli og jú; ein einasta hattaverksmiðja.
Luton er afskaplega hefðbundinn lítill breskur bær en undarlega dapur miðað við að í borginni búa litlu færri í Reykjavík eða um 110 þúsund manns.
Til og frá
Luton flugvöllur, sem kallaður er London Luton Airport til að heilla fleiri en ella, er í rúmlega 50 kílómetra fjarlægð frá London og þangað er ekki komist alla leið með lest eins og raunin er með Gatwick og Heathrow.
Til og frá London er komist á um það bil 25 mínútum ef marka má auglýsingar en það er langsótt. Nær lagi er að gera ráð fyrir að túrinn taki 35 til 45 mínútur en munurinn skýrist af lestarumferðinni og hún er töluvert mikil á morgnana og seinnipart. Miðaverð getur verið misjafnt en ódýrustu miðarnir aðra leiðina kosta 2.500 krónur. Lestir ganga beint hingað frá St.Pancreas lestarstöðinni í London en það eru lestir First Capital Connect sem ferja fólk þá leiðina.
Fara verður spottkorn með skutlu eða leigubíl frá Luton Parkway lestarstöðinni að flugstöðinni sjálfri. Tekur sá túr þó undir fimm mínútum og vissara að bóka miða með skutlunni með fyrirvara því sé miði keyptur á staðnum greiðist 230 króna aukagjald á mann.
Sjálfur er Luton völlurinn afskaplega lítill og aðeins ein flugbraut en hér eru höfuðstöðvar lágfargjaldaflugfélagsins easyJet og héðan fara eða koma stór meirhluti véla þess flugfélags.
Þjónusta í flugstöðinni er takmörkuð. Sæti og bekkir ekki til þess fallin að geta hvílt sig mikið eða lengi. Flugstöðin er þó opin allan sólarhringinn en matsölustaður og kaffihús loka á kvöldin.
Einnig er komist til og frá London og öðrum flugvöllum með rútum National Express. Það er þó martraðarferðalag frá miðborg London. Ferðatíminn er aldrei undir 2:15 klukkustund aðra leiðina og oftar lengur en það. Er þetta raunar ALLS EKKI kostur nema fólk hafi mikinn tíma fyrir sér því umferðartafir á hraðbrautum þessa leiðina eru mjög algengar. Eitt einasta umferðarslys getur því auðveldlega bætt klukkutíma við ferðatímann. Þá er heldur ekki á þessu mikið að græða peningalega því ódýrustu sætin í boði með fyrirvara kosta 3.100 krónur.
Sömuleiðis tekur tímann sinn að komast milli flugvalla sé þörf á því. Skal fólk hiklaust gefa sér fjóra klukkustundir í ferðatíma því annað býður hættunni heim.
Að síðustu er hægt að láta ferja sig með leigubíl til og frá London. Kostnaður við það á dagtaxta er á milli átta og ellefu þúsund krónur eftir leigubílaþjónustu. Aftur skal hafa í huga að bíllinn gæti orðið fastur í umferð þó alla jafna eigi leigubíllinn að vera mun fljótari en rútan.
Bílaleigubílar fást á flugvellinum og eru kjörin leið ef halda á annað en til London. Bíll þar í borg er tóm tímaeyðsla og kostnaður.
Söfn og sjónarspil
> Wardown Park safnið (Wardown Park Museum) – Standi hugur til að kynnast borginni og sögu hennar er best að halda hingað. Safnið sögusafn um fortíð og nútíð Luton og hér má ennfremur skoða sérstakt hattasafn, herdeildarsafn og silkisafn. Ekki er staðið meira á seremóníu hér en að hægt er að leigja staðinn undir barnaafmæli ef svo ber undir. Staðsett við Old Bedford Road. Strætisvagnar 24 eða 25 frá miðbænum. Opið 10 til 17 daglega nema mánudaga. Frír aðgangur. Heimasíðan.
> Fræðslugarðurinn (Stockwood Discovery Garden) – Hálfpartinn leikskóli og kjörið að koma með börnin hingað enda fjöldi leiktækja og forvitnilegra hluta fyrir smáfólkið. Þeir eldri geta kynnt sér líferni býflugna eða rölt um garðinn í hægðum sínum. Hér eru á tíðum forvitnilegir hlutir til sýnis sem eiga rætur að rekja til fólks í Bedfordskíri. Strætisvagn 321 frá miðbænum. Opið 10 – 17 alla daga nema mánudaga. Frír aðgangur. Heimasíðan.
> Maríukirkjan (St.Mary´s church) – Tignarleg 850 ára gömul kirkja í miðbænum við Kirkjustræti. Kirkjan er opin daglega og líklegra en ekki að presturinn sé á vappi ef fólk vill létta af sér. Messur á sunnudögum klukkan tíu. Heimasíðan.
> Húsdýragarðurinn (Woodside Animal Farm) – Ekki ósvipaður garður og húsdýragarðurinn í Reykjavík sem vitaskuld heillar smáfólkið séu þau með í för. Garðurinn er þó staðsettur töluvert út úr bænum við Woodside Road en þangað er tíu mínútna akstur. Heimasíðan.
Verslun og viðskipti
Nokkuð er hér af verslunum og aðallega í miðbænum. Hægt er að gera hér aðeins betri kaup en í stórborgum landsins en úrvalið talsvert lakara.
Forvitnilegt gæti verið að bregða sér að Gömlu vatnsmyllunni, Olde Watermill, en þar eru til húsa sérverslanir sem selja handunna muni frá Luton og nærsveitum. Stærsta verslunarmiðstöðin hlaut hið merkilega nafn The Mall og finnst við götuna The Mall.
Matur og mjöður
Hér eru á miðbæjarsvæðinu þrír eða fjórir hefðbundir breskir pöbbar sem jafnframt selja mat. Skyndibitastaðir eru víða en betri veitingastaðir eru vandfundnir. Restaurantguide.com mælir með þessum hér.
Annað og áhugavert
Í nágrenni við Luton er að finna nokkra ágæta golfvelli. Þeir eru:
Sé það eitthvað eitt utan flugvallarins sem Luton er þekkt fyrir utan bæjarsteinanna er það Luton Karnivalið sem haldið er hvert ár í maí. Frægðin skýrist af því að þetta er stærsta eins dags karnival í Bretlandi. Heimasíða þess hér.
View Áhugaverðir staðir í Luton á Englandi in a larger map







