Flugmálayfirvöld hafa loks ákveðið að hefja mælingar á gosösku í lofti við Keflavíkurflugvöll eftir margvíslega gagnrýni frá flugmönnum og flugrekendum.
Var enda fátt vísindalegt við ákvörðun flugyfirvalda að setja á flugbann hér á sunnudaginn var.
Tilkynnti Isavia þetta fyrir stundu en mælingarnar verða gerðar í samstarfi við Háskóla Íslands og flugrekstraraðila.
Eins og Fararheill.is greindi frá undruðust flugmenn flugbannið á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn var þar sem hvergi sást gosaska í lofti suðvestanlands fyrr en komið var undir kvöld þann dag.
Stuðst verður því við raunverulegar mælingar á næstunni þegar ákvörðun verður tekin um lokun eða opnun Keflavíkurflugvallar.






