Tíðindi

Flugsamgöngur mjög úr skorðum nema hér

  24/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Það sem af er degi hefur aðeins tveimur áætlunarflugum verið skotið á frest frá Leifsstöð. Eru það ferðir til Manchester og London á Englandi en aðrar ferðir eru á áætlun bæði til og frá landinu.

Engu að síður eru nú töluverðar truflanir á flugi í Evrópu. Flugbann er á Skotlandi og á hluta Írlands og Danmerkur og hafa um 200 ferðir verið felldar niður í dag eða frestað.

Flugfélagið Ryanair, sem mjög gagnrýndi lokun lofthelgi fyrir ári vegna Eyjafjallagossins, gagnrýnir lokunina nú ekki minna og sendi flugfélagið eina vél sína til könnunarflugs í morgun. Tilkynnti félagið að hvergi hefði orðið vart ösku í lofti í 41 þúsund fetum yfir Skotlandi og engar öskuleifar hefðu fundist við skoðun á vélinni eftir lendingu.