Öllu flugi til og frá landinu hefur verið aflýst ótímabundið vegna eldgossins í Grímsvötnum en kunnugir segja það gos það mesta á þeim slóðum lengi og síst minni gosmökkur nú en setti allt flug úr skorðum á heimsvísu við gosið í Eyjafjallajökli fyrir ári síðan.
Vindáttir eru reyndar hagstæðari nú þar sem megnið af ösku dreifist nú norður en ekki suður eins og raunin var í gosinu í Eyjafjallajökli.
Flugmenn sem Fararheill.is hefur rætt við telja alveg dæmalaust að loka Keflavíkurflugvelli því engin aska er sjáanleg í stórum radíus umhverfis Reykjanesið og engin mælitæki eru til sem geta tekið af vafa á hvorn veginn sem er.
Þá var ekki getið um flugbannið á vef Keflavíkurflugvallar fyrr en um ellefu leytið í morgun eða þremur stundum eftir að flugbann var sett á vegna gossins.






