Hvorki fleiri né færri en 78 prósent Frakka segjast að öllu leyti skipuleggja sín eigin sumarfrí og hirða lítið um pakkaferðir ferðaskrifstofa. Eru þetta fimm prósent fleiri en svöruðu sömu spurningu játandi fyrir aðeins einu ári.
Þetta kemur fram í viðamikilli könnun tryggingarisans Europe Assistance og sýnir að almennt eru Evrópubúar farnir að reiða sig á sig sjálfa þegar kemur að skipulagningu á leyfum og fríum.
Vitaskuld er það veraldarvefurinn sem gerir fólki kleift að skipuleggja fínustu frí á einni kvöldstund ef því er að skipta og það oft á tíðum á mun lægri verðum en nokkrar ferðaskrifstofur bjóða.
Fararheill.is hefur ítrekað bent á hversu mikið má spara miðað við einstaka ferðir íslenskra ferðaskrifstofa og geta þær upphæðir skipt tugum og í stöku tilfellum hundruðum þúsunda króna.
En auðvitað hafa Frakkar þann kost að geta ekið til ýmissa landa og ekki síður fljúga mörg lágfargjaldaflugfélög frá mörgum frönskum borgum og gera þannig heilu fjölskyldunum kleift að ferðast án þess að millilenda eða punga út formúgum fyrir eins og íslenskir ferðalangar verða að gera.






