Tíðindi

Safn á Suðurskautinu

  25/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Heita má að síðasta vígið sé fallið nú þegar áætlanir eru uppi um uppbyggingu safns fyrir ferðamenn á einu heimsálfunni sem engin hefur söfnin. Stjórnvöld í Chile ætla að byggja Heimsskautasafn á Suðurskautslandinu.

Chile á hlut í þeirri ágætu heimsálfu og skal safnið rísa þar sem nú stendur rannsóknarstöð Chile í Iquique flóa á Greenwich eyju í Suður Shetlands eyjaklasanum. Sú eyja er ásamt öðrum í klasanum tæknilega hluti af Suðurskautinu þó eyjurnar standi utan við Suðurskautslandið sjálft eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Þó ekki hafi Chile framkvæmt jafn áberandi rannsóknir á Suðurskautinu og aðrar stærri þjóðir hefur verið rekin rannsóknarstöð af þeirra hálfu síðan 1947. Mun á safninu gefa að líta stöðina sjálfa sem lítið er í notkun auk fjölda hluta og muna frá fyrri tíð.

Þó Suðurskautið sé almennt ekki á radarnum hjá velflestum ferðamönnum er ótrúlegur fjöldi fólks sem dreymir um að heimsækja staðinn og láta verða af því. Er áætlað að árið 2007 hafi rúmlega 140  þúsund manns komið á Suðurskautið sem ferðamenn og dvalið þar dag eða lengur. 40 þúsund manns að auki fara árlega í útsýnisferðir með flugi án þess að stoppa neitt. Þá fljúga nokkur flugfélög sum áætlunarflug sín sérstaklega yfir Suðurskautslandið og hefur slíkt notið vinsælda.

Í þessum hópi eru allnokkrir Íslendingar sem fregnir hafa birst af í blöðum hérlendis og virðast margir þeirra ekki geta staðist freistinguna að fara aftur og aftur.

Velflestir þeir sem ferðast til Suðurskautsins til lengri eða skemmri tíma gera það frá Punta Arenas í Chile en ýmsir velja líka að fara sjóleiðina frá Argentínu, S.Afríku eða Nýja Sjálandi.


View Safn Suðurskautið in a larger map