Týndur farangur er risastórt vandamál fyrir ferðalanga og ekki síður kostnaðarsamt fyrir flugfélög heimsins en rannsóknir hafa sýnt að farangursleit og ekki síður að koma honum í hendur eigenda ef töskur finnast kostar flugfélög á heimsvísu um 450 miljarða króna. Nú er kannski endir á þessu í augsýn.
Air France er, okkur vitandi, fyrsta flugfélagið sem prófar að merkja töskur farþega með sérstöku GPS merki sem þýðir að hægt er að sjá öllum stundum hvar taska er niðurkomin. Þetta fyrirkomulag er á tilraunastigi eins og er hjá flugfélaginu franska en ef vel gengur þykir víst að þetta kerfi verði tekið upp í framtíðinni.
Eini gallinn er að kostnaður við GPS merkin er heldur mikill ennþá en það fer niður með aukinni notkun. Komi kerfið að gagni mun líka kostnaður flugfélagsins vegna leitar og eða bótagreiðslna minnka til mikilla muna.








