M argir bera innra með sér fjarska frumstæðan ótta um að geta ekki greitt fyrir góða máltíð á góðum veitingastað. Kortinu verði hafnað eða að máltíðin verði mun dýrari en seðlar í vasa dugi fyrir. Verður þá hringt á lögregluna eða er hægt að vaska upp fyrir reikningnum?

Hver veit nema hér bregði Jon Bon Jovi fyrir meðan borðað er. Mynd Jim Forest

Hver veit nema hér bregði Jon Bon Jovi fyrir meðan borðað er. Mynd Jim Forest

Þessi ótti fýkur út í veður og vind á stað sem heitir JBJ Soul Kitchen og finnst bæði í Red Bank og Toms River hverfunum í New Jersey í Bandaríkjunum. Upphafsstafirnir ættu að segja fólki ýmislegt því það er skammstöfun nafns manns sem ferðaðist um farsæla Frón sumarið 2011 og bar af sér góðan þokka hvar sem hann kom.

Jon Bon Jovi heitir sá og er þekktastur sem þungarokkssöngvari næstum því samnefndrar hljómsveitar. Hann á staðinn og rekur reglulega inn nefið þó ekki sjái rokkarinn um daglegan rekstur. Hann býr þó í þessu sama hverfi.

Staðirnir hafa báðir fengið flotta dóma matgæðinga sem komið hefur ýmsum á óvart því um samfélagslegan stað er að ræða. Þangað geta allir komið, auralausir eða ekki, borðað magafylli og boðist í kjölfarið að vinna fyrir máltíðinni ef ekki er peningur í buddunni.

Red Bank er í New Jersey fylki við hlið New York en þar er fín bækistöð þeirra er vilja skoða New York án þess að borga Manhattan verð fyrir gistingu og mat. New Jersey er almennt mun ódýrari en nágrannaborgin þó vissulega státi hún ekki af gersemum á borð við þær er finnast í New York.

En enginn veitingastaður Jon Bon Jovi er heldur í New York. Soul Kitchen finnst við Monmouth stræti örstutt frá lestarstöðinni í Red Bank hverfinu í New Jersey.