J afnvel þó þú hafir heimsótt Róm oftar en einu sinni og oftar en tvisvar eru sterkar líkur á að þú hafir aldrei heyrt talað um hverfið Eur. Það gæti breyst á næstunni.

Það væri helst fólk í viðskiptaerindum sem veit hvar hverfið Eur er að finna í Róm. Mynd Riccardo
Það er nefninlega í þessu Eur hverfi, í suðurhluta borgarinnar, þar sem borgaryfirvöld ætla að stofna formlega hið rauða hverfi Rómar. Tillaga þess efnis var samþykkt í borgarstjórn nýlega en þó hreint ekki mótmælalaust.
Varla þarf að fjölyrða um hvað rautt hverfi er. Slík finnast víða þó rauð hverfi Amsterdam eða Hamborgar séu líklega hvað þekktust hérlendis. Þar á einum og sama staðnum hægt að ganga að kynlífi vísu með vændiskonum og vændismönnum og yfirleitt ekki síður komast í nánd við fíkniefni og vafasamt fólk af ýmsu tagi.
Rómverjar ætla að fylgja Hollendingunum eftir og reyna að koma skikki á vændi í borginni með því að gera það leyfilegt og sýnilegt á afmörkuðu svæði í stað þess sem nú er reyndin að seljendur hangi á mörgum götuhornum víðs vegar í borginni og reyni þar að koma vöru sinni á framfæri. Það ekki lítið verk því tölur Rómaborgar segja að vændiskonur í borginni sé að minnsta kosti eitt hundrað þúsund talsins og líklega mun fleiri. Þjónustan sem þær veita er nýtt af 2,8 milljónum karlmanna mánaðarlega samkvæmt sömu úttekt og greint er frá í La Repubblica.
Það verður sem sagt eftirleiðis beitt stórum sektum gegn öllu því vændisfólki sem finnst utan Eur og má leiða líkum að því að ekki líði á löngu áður en hugmyndin um rautt hverfi verði raunverulega rautt hverfi.







