Kannski ertu harðkjarna sjómaður frá Ögri eða steinrunnin skessa frá Egilsstöðum. En fólk almennt má vera æði laust við tilfinningar til að komast ekki við þegar hinir fögru og oft ósjálfbjarga kóala-birnir Ástralíu birtast á skjánum.
A HELPFUL HAND: An Australian cyclist was with friends in the countryside when she saw a thirsty koala searching for water– she let it drink from her water bottle #8NN
STORY: https://t.co/CIxJrefB8U pic.twitter.com/8q8tSOxZWz— 8 News NOW (@8NewsNow) December 28, 2019
Þegar þetta er skrifað hafa um TÓLF ÞÚSUND þessara fallegu skepna orðið eldum að bráð hinu megin á hnettinum samkvæmt síðustu tölum. Það í ofanálag við 60 prósenta fækkun á síðustu tuttugu árum í landinu öllu og nú eru aðeins eftir um 300 þúsund kóalabirnir í Ástralíu allri.
Gera má ráð fyrir að eldhafið sem umlykur hina og þessa bæina í landinu fargi enn fleirum á næstu dögum og vikum enda sér ekkert fyrir endann á geðveikum skógareldum í landinu.
Óvitlaust að gera sér ferð til Ástralíu fyrr en síðar og þá helst draga börnin með. Það fer sennilega að renna upp sá tími að kóala-birnir finnist aðeins á YouTube og í stöku dýragörðum 🙁







