G árungarnir segja að allir góðir hlutir taki enda og þeim hittist satt á kjaft en gang imellem. Nú geta forvitnir aðdáendur fegurðar og byggingalistar ekki lengur dúllað sér við hinn magnaða lystibrunn Trevi í Róm.

Hangs ekki lengur leyfilegt við hinn stórkostlega Trevi-brunn í Róm. Sorgardagur fyrir unnendur lystisemda.
Það er með Trevi eins og fjölmarga aðra fræga staði í veröldinni að jafvel fallegustu myndir af þeim fyrirbærum blikna hundrað prósent þegar fólk vitnar þá í eigin persónu.
Vissulega stórkostlegt mannvirki á myndum en það þarf sterkar taugar til að komast ekki við þegar fólk stendur við brunninn sjálfan, vitnar heimsklassa arktitektúrinn en upplifir ekki síður eitthvað dýpra en bara skæra hrifningu. Það er eitthvað verulega sérstakt við Trevi sem finnst aðeins við brunninn sjálfan og helst seint að kvöldi eða um nótt þegar ferðamönnum hefur fækkað til muna.
Alas, það er of seint að setja sig í þau spor nú. Borgaryfirvöld í Róm hafa tekið harðlínustefnu gagnvart fjölda fólks, yfirleitt ferðafólks, sem getur ekki á sér setið og kastar peningum og smáhlutum í brunninn. Líka þeim er gera sér lítið fyrir að hoppa ofan í brunninn og valsa þar um eins og frægt er úr kvikmyndinni frægu La Dolce Vita.
Nú er búið að girða af stærsta hluta brunnsins og gestum gefst einungis færi á að skoða hann í mýflugumynd vegna þess að öryggisverðir keyra fólk hér áfram og leggja blátt bann við stoppi eða hangsi.
Þvílík synd fyrir þá sem ekki hafa sest hér niður í áranna rás og gleymt sér í tómri fegurðinni.







