Hin hálfopinbera stofnun Isavía hefur lengi vel ekki komist í fréttir nema af miður góðum sökum: forstjórinn lætur borga undir rassinn á sér og konunni, eldra starfsfólki gefinn fingur og spark, leynimakk vegna útboða og ör fjölgun farþega sem allt setti á annan endann allt síðasta sumar.

Nú er hægt að stytta leiðindin í bið í Keflavík. Skjáskot
En eigi er allt svo með öllu illt. Stofnunin uppfærði nýlega Keflavíkurvef sinn og allt annað og betra að finna þar upplýsingar en áður var. Eitt sérstaklega er æði vel til fundið. Nú getur fólk séð á augabragði hversu mikil örtröð er í öryggisleit vallarins.
Fínustu upplýsingar að hafa og getur jafnvel minnkað leiðindabið í farþegasal um heilan helling. Engin þörf á að hunskast á staðinn með þriggja stunda fyrirvara ef engin er röðin við öryggishliðin. Þá sleppur rúm klukkustund eða svo.
Að sama skapi vekur mikla athygli, og segir sitt um viðhorf forstöðumanna Isavía, að hvergi er staf að finna um réttindi farþega. Ekki er heldur, okkur vitandi, staf að finna um réttindi farþega inni í Leifsstöð. Sé einhver í vafa um rétt sinn verður sá hinn sami að valsa fram og aftur um stöðina og vona að einhver hjálpsamur verði á vegi. Sem er svipað líklegt og Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, komi einhverju í verk á sinni ævi.
Það í hróplegri andstöðu við fjölmarga flugvelli Evrópu þar sem lög, reglur og réttindi eru skýrð í máli og myndum og það víðar en á einum stað.
Þetta skiptir sérstöku máli sökum þess að umsvifamestu flugfélögin í Keflavík, Icelandair og Wow Air, hafa um margra ára skeið alfarið sloppið við áminningar eða sektir þó hvorugt upplýsi viðskiptavini sína um réttindi eins og lög kveða á um.







