Hann heitir Tilikum og er frægasti háhyrningur síðan Willy/Keikó mætti dauða sínum. Hann er líka íslenskur og liggur fyrir dauðanum.

Sennilega hægt að segja að dauðinn komi ekki of fljótt fyrir háhyrninginn Tillicum. Mynd YouTube

Sennilega hægt að segja að dauðinn komi ekki of fljótt fyrir háhyrninginn Tillicum. Mynd YouTube

Kannski langsótt að segja að Tilikum sé íslenskur en hann var allavega fangaður hér við land fyrir rúmum 30 árum síðan og hefur síðan eytt sínum dögum bak við lás og slá sem sýningardýr hjá SeaWorld í Bandaríkjunum.

Eins og hinn frægi Keikó áður fyrr hefur Tilikum einnig komist á forsíður blaða og fengið gerða um sig kvikmynd. Sú kvikmynd öllu hræðilegri en Free Willy því sú mynd, Blackfish, vakti mikið umtal um hræðilegan aðbúnað þessara fallegu dýra í görðum SeaWorld.

Þrjátíu ár í níðþröngu rými er ívið nægur tími til að gera menn eða dýr sturluð og hætt við að sturlun hafi náð tökum á Tilikum á sínum tíma en þetta er háhyrningurinn sem sagður er hafa drepið þrjá einstaklinga í laug sinni. Tvo þjálfara og einn heimilislausan mann sem einhverra hluta vegna stakk sér til sunds í háhyrningalaug SeaWorld.

Nú hafa þjálfarar Tilikum tilkynnt að hann þjáist af alvarlegri sýkingu sem ekki hefur tekist að bæla niður með lyfjum og sterkar líkur séu á að háhyrningurinn kveðji þennan heim innan skamms.

Sá dauði getur sennilega ekki komið of fljótt.