Lok september hér á landi er oftar en ekki sá árstími þegar vindar fara að blása aðeins of köldu til að lengur sé hægt að spóka sig í sumarfötunum þó vissulega séu á því undantekningar. Er það ekki kjörtími til að lengja aðeins í sumrinu og trítla um strendur Mallorca fyrir lítið fé?

Portals Nous er einn hinna ljúfu smábæja Mallorca. Mynd Minktiki

Portals Nous er einn hinna ljúfu smábæja Mallorca. Mynd Minktiki

Sem kunnugt er lesendum Fararheill er Mallorca nokkuð horfin af söluskrám innlendra ferðaskrifstofa. Ástæðan að hluta til sú að Mallorca er orðin nokkuð dýrari dvalarstaður en margir aðrir á Spáni og það með vilja gert af hálfu stjórnvalda á eynni. Þeir vilja fá auðugri ferðamenn en verið hefur og hefur tekist ágætlega til.

En stundum detta í hús sértilboð til Mallorca sem er ekki síður indæl nú en áður og við rákumst á sæmilegt tilboð bresku ferðaskrifstofunnar Fleetway til smábæjarins Portals Nous á eynni. Sá er ekki laus við túrisma en hefur náð að viðhalda bæjarsjarma sínum þrátt fyrir það. Og ströndin hér er aldeilis ágæt.

Fleetway er að bjóða fimm til fjórtán nátta ferðir þangað í allt sumar og fram á haust en lægsta verð fæst á brottförum frá Luton eða Gatwick í lok september og byrjun október. Þá kostar manninn 65 þúsund krónur að fljúga til Mallorca og dvelja vikutíma á glænýju design hóteli svokölluðu með morgunverði.

Þá er eftir að komast til Bretlands og sé fólk ekki að hrúga miklum farangri með sér er komist með easyJet til Luton og heim aftur fyrir um 18 þúsund krónur á mann. Samtals vikuferðin því 83 þúsund krónur eða svo. Fjarri því að brjóta bankann.

Nánar hér.