Flest okkar höfum gaman af þrautum og gátum af ýmsu tagi. Nema kannski ekki í auglýsingum fyrirtækja.

Hér að neðan eru tvö skjáskot af vef Wow Air þessa stundina. Við spyrjum: hvað er athugavert við myndirnar?

wowaug wowaug6

Guli dálkurinn á alltaf að sýna ALLRA lægstu fargjöld hverju sinni til áfangastaða Wow Air. Hann er þó ekkert að marka greinilega því stóru auglýsingarnar fyrir ofan sýna mun lægra verð en auglýst er sem „okkar lægsta WOW verð.“

Hjá siðmenntaðri þjóðum væri líkast til búið að gera alvarlegar athugasemdir við að auglýsa allra lægstu verð sem svo ekki standast.