Hmmmm. Flug- og ferðavefur hins íslenska Dohop hefur margt til síns ágætis. En flagð er oft undir fögru.

Dohop eftirbátur að mestu í stikkprufum Fararheill.
Það er hörð baráttan um peninga ferðamanna þessa heims 0g í harðri samkeppni grípa sumir til vafasamra ráða. Eins og Dohop framsóknarmannsins Frosta Sigurjónssonar. Alltaf mínus fyrir vitiborið fólk að vera í Framsóknarflokknum. Þar eru jú skítaplebbar á borð við Ólaf Ólafsson, Pálma Haraldsson, Sigmund Davíð, Jón Ingi Gíslason og Björn Ingi og Björn Ingi Hrafnsson.
Fyrirtækið atarna auglýsir flugferðir á æði ljúfu verði hingað og þangað um heiminn. En könnun okkar leiðir í ljós að lægstu verð sem finnast á vef Dohop eru ívið hærri en finnast á vefum flugfélaganna sjálfra!!!
Dæmin fjölmörg og við ekkert að tíunda þau. Hver sem er getur gengið úr skugga um þetta sama með samanburði á fargjöldum Dohop annars vegar og fargjöldum viðkomandi flugfélags hins vegar. En munurinn getur verið æði drjúgur.
Til dæmis er lægsta verð á flugi fram og aftur til Istanbúl í Tyrklandi frá London þann 12. júní þegar þetta er skrifað á vef Dohop 37.273 krónur miðað við gengi dagsins. En skottist einhver yfir á vef Turkish Airlines fæst sama flugið á 29.178 krónur.
Annað dæmi snýr að bandaríska flugfélaginu Delta sem flýgur beint héðan til Bandaríkjanna. Flug fram og aftur til New York þann 4. ágúst og heim 17. ágúst finnst á vef Dohop fyrir 79 þúsund krónur rúmar á sardínufarrými. En leit á vef Delta á sömu dagsetningum leiðir í ljós að sardínurfarrýmið báðar leiðir kostar aðeins 74.643 krónur. Það er, með öðrum orðum, fimm þúsund krónum ódýrara að kaupa flugið á vef Delta en á vef Dohop!!!
Fleiri dæmi gætum við talið upp en við látum nægja að sinni. Ljóst má vera að fullyrðingar Dohop þess efnis að fyrirtækið finni „allra lægsta” verð á flugi hingað og þangað eiga sér engan stað í raunveruleikanum.
Ekki láta plata þig…







