Hvernig hljómar að gista nótt eða tvær á lúxushóteli í miðborg London og eyða þar hundrað þúsund krónum eða svo í tóma vitleysu áður eða eftir tveggja vikna dvöl á Tenerife og samt reynist ferðin ódýrari en að Úrval Útsýn er að bjóða hér heima?

Playa de las Americas á Tenerife er afar vinsæll staður enda hitastigið ljúft allan ársins hring. Mynd Annabel Beales
Eins og Fararheill hefur ítrekað bent á gegnum tíðina eru ferðir hvers kyns hræðilega dýrar hérlendis. Skiptir alls engu máli við hvað er miðað í Evrópu eða vestanhafs í Bandaríkjunum. Alltaf eru ferðir héðan tugum og jafnvel hundruð prósentum dýrari en sams konar pakkar annars staðar. Það vita lesendur okkar enda við gjarnan gert samanburð reglulega.
Nú datt okkur í hug að skoða nánar hvað við gætum gert til að aðstoða ykkur að komast ódýrt til Tenerife þetta sumarið og jafnvel við sem erum ýmsu vön urðum hissa. Verðmunur á sams konar ferð héðan og að panta slíka ferð með breskri ferðaskrifstofu og punga út fyrir flugi til og frá London í ofanálag reynist vera um og yfir EITT HUNDRAÐ PRÓSENT.
Í neðangreindum dæmum miðuðum við ferðir Úrval Útsýn sem er að bjóða ferðir í allt sumar til Tenerife en hafa skal í huga að aðrar ferðaskrifstofur eru ekki endilega neitt að bjóða betur. Við tókum þrjú dæmi um þriggja manna fjölskyldu sem dvelur tvær vikur í júní á Playa de las Americas ströndinni í Tenerife.
Við ráðleggjum fólki að setjast niður áður en lesið er lengra…
DÆMI A) Úrval Útsýn býður tveggja vikna ferð frá 11. júní til 25. júní með gistingu á Hotel Fanabe Costa Sur með hálfu fæði fyrir tvo fullorðna og eitt barn fyrir 540.944 krónur samtals. Sama ferð þann 10. til 24. júní með ferðaskrifstofu Thomas Cook á sama hóteli, sama herbergi með hálfu fæði, farangri og ferðum til og frá flugvelli fæst á vef þeirra fyrir 261.074 krónur . Helmingi lægra verð en bíðum samt aðeins við. Ef við kíkjum svo á vef Thomson ferða fæst þessi ferð líka þar og á 216.437 krónur. Verðmunurinn á ferð Úrval Útsýn og Thomson reynist vera alls 325 þúsund krónur. Með fargjaldi til London og heim aftur er ennþá eftir 200 þúsund krónur til að spara, fata sig upp eða eyða bara í vitleysu.
DÆMI B) Sama tveggja vikna ferð til Tenerife en nú ætlum við að gista á Gran Costa Adeje hótelinu. Úrval Útsýn býður sinn tveggja vikna pakka lægst með hálfu fæði á 646.280 krónur. Sama hótel finnum við hjá Thomson og tveggja vikna ferð einum degi áður fæst þar fyrir tvo fullorðna og eitt barn með hálfu fæði fyrir 395.601 krónu. Munurinn hér rúmlega 250 þúsund krónur og rúmar hundrað þúsund krónur eftir í veskinu eftir að greitt hefur verið fyrir flug til London og heim aftur.
DÆMI C) Þriðja hótelið sem við litum á er Hotel Troya en dvöl þar í tvær vikur í júnior svítu eins og það heitir kostar hjá Úrval Útsýn fyrir tvo fullorðna og eitt barn á hálfu fæði alls 748.200 krónur. Lastminute.com býður tveggja vikna dvöl á sömu svítu á sama hóteli og flug degi fyrr frá London fyrir 371.397 krónur. Verðmunurinn hér ekki nema 376 þúsund krónur. Tökum frá hundrað þúsund í flug til London og heim og þá er drjúgur skildingur eftir í eyðslufé.
DÆMI D) Ekki hafa allir nennu að millilenda í London jafnvel þó sparnaðurinn við það geti numið hundruð þúsundum króna. Þá er enn eitt til í dæminu og sýnir kannski best hversu léleg ferðatilboð Úrval Útsýn er að bjóða upp á. Á vef þeirra er hægt að kaupa aðeins flug til Tenerife. Það eins og annað kostar sitt eða 366 þúsund krónur fyrir tvo fullorðna og eitt barn. Gegnum hótelleitarvél Fararheill fundum við fjölskylduherbergi með hálfu fæði frá 11. til 25. júní á þriggja stjörnu Colombus á Playa de las Americas niður í 142 þúsund krónur. Sé fólki sama hvar dvalist er er þar líka hægt að finna allsæmileg íbúðahótel þennan tíma allt niður í 50 þúsund krónur. Það er 40 þúsund krónum lægra verð en gisting á allra ódýrasta hóteli sem ÚÚ er að bjóða.
* Öll verð rétt og uppfærð miðað við miðgengi kl. 15 þann 4. apríl 2014. Verð breytast hratt á öllum miðlum og ber að hafa það í huga. Þá skal og hafa í huga að í sumum tilfellum þarf að gista nótt í London á útleið eða heimleið.







