Þrjátíu mismunandi áfangastaðir en alls engar beinar ferðir til vinsælasta áfangastaðar Íslendinga??? Hér kannski ástæða þess að Icelandair gengur ekkert allt of vel.

Nýr og ferskur gaur en sama gamla myglan. Mynd Icelandair
Stjórnendur Icelandair þurfa á endurmenntunarnámskeið eigi síðar en í gær. Það eina sem þeim dettur í hug sem viðbrögð við því að skæðasti keppinauturinn liggur undir moldu er að snarhækka fargjöld til þeirra áfangastaða sem flugfélagið bauð upp á áður en samkeppnisaðilinn dó drottni sínum.
Er virkilega enginn hjá stærsta flugfélagi Íslands sem hugkvæmist að bjóða upp á beinar flugferðir til vinsælasta áfangastaðar Íslendinga???
Við spyrjum sökum þess að flugfargjöld lággjaldaflugfélagsins Norwegian, eina flugfélagsins sem býður nú þráðbeinar flugferðir til Alicante á Spáni þar sem tíu þúsund Íslendingar eiga fasteignir og hundruð þúsund Íslendingar sækja heim árlega, hækka nú hraðar en þjónustugjöld hjá Goldman Sachs Arion banka.
Hjá Icelandair sitja menn þó pollrólegir og íhuga leiðir til að hækka fargjöld til Fjarskanistans og þynna út epladjúsinn sem fæst um borð á 700 kall.
Og þetta skítakompaní flýgur í nafni Íslands….







