Forstjóri hins írska lággjaldaflugfélags Ryanair er nískari en Skoti í afvötnun. Það skýrir hvers vegna vinsælasta lággjaldaflugfélag heims hefur enn ekki hafið flug til og frá Íslandi. En það gæti breyst.

Ísland eitt heitasta ferðamannaland Evrópu en stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu hvergi nærri. Það gæti farið að breytast.

Samkvæmt heimildum Fararheill sperrtust Írarnir töluvert þegar Wow Air lagði upp laupa fyrr í vetur.

Óljóst er hvort Ryanair hefur beinlínis þegar  leitað hófa hjá Ísavía með flug til og frá Íslandi en Ísavía gefur ekkert slíkt upp. En við vitum fyrir víst að írska flugfélagið hefur, þrátt fyrir að hafa lent á vegg tvívegis, enn áhuga á að selja flugferðir til og frá landinu. Ísland er jú enn funheitt heimsóknar á sama tíma og gengi bréfa í Ryanair er flatara en maginn á Annie Mist.

Hvers vegna er stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, með höfuðstöðvar í næsta nágrenni í Dublin á Írlandi, ekki nú þegar að fljúga til og frá landinu?

Jú, það skýrist af nísku. Ryanair flýgur helst ekki neitt nema það kosti annaðhvort klink og kanil eða að viðkomandi svæði eða land beinlínis niðurgreiði flugferðir til og frá. Þannig nær einkafyrirtækið að sýna drjúgan hagnað ár eftir ár og vaxa hraðar en fífill í skítahaug og að mestu á kostnað skattborgara viðkomandi landa.

Að því sögðu þá býður Ryanair aldeilis fáránlega lág fargjöld. Aðeins tvær vikur síðan einn úr ritstjórn flaug með Ryanair frá London til Santander á Spáni fyrir heilar 7 þúsund krónur með tösku meðferðis.

Flugfélagið írska hefur tvívegis áður ætlað að fljúga til og frá Íslandinu góða en hætt við í bæði skipti sökum kostnaðar. Ísavía hefur ekki viljað gefa neina feita afslætti og ólíkt því sem gerist víða erlendis eru engir stórir varaflugvellir við Reykjavík eða Akureyri sem safna ryki og drullu og Ryanair getur nýtt sér.

En nú er smá pressa á Ísavía vegna samdráttar og Íslands í heild sem ferðamannalands og nískir írskir hafa nef fyrir slíku. Okkar heimildir herma að það sé teymi í Dublin að skoða mjög alvarlega að hefja flug til Íslands og frá. Þeir vita sem er að Icelandair er nú eini aðilinn á nokkrum vinsælum flugleiðum til og frá landinu og þeir vita líka að fargjöld Icelandair eru almennt dýrari en Ferrari á sterum. Aldeilis kjörtími fyrir Íra og kannski líka fyrir okkur sem þolum ekki einokun í flugi…

PS: Það er ekkert súper frábært að fljúga með Ryanair. Sætisbil þrengra en nálarauga, þjónusta alls engin, ekkert innifalið og enginn griði gefinn. Ekki ólíkt því sem gerist hjá Icelandair þessa síðustu og verstu 😉