Það birtist ekki orð um það í íslenskum fjölmiðlum en nokkuð merkileg tíðindi áttu sér stað á föstudaginn var. Þá settu spekingar fjármálafyrirtækisins CitiGroup hlutabréf ferðarisans Thomas Cook í ruslflokk og mátu virði bréfa fyrirtækisins á NÚLL KRÓNUR!

Ein stærsta ferðaskrifstofa heims fær súperfeita falleinkunn hjá CitiGroup.

Um þetta má lesa nánar hér hjá Euronews en okkur þykja það mikil tíðindi að elsta og ein allra stærsta ferðaskrifstofa heims skuli fá slíka flengingu frá fjármálaspekúlöntum. Núll krónur per bréf þýðir auðvitað að fyrirtækið er gagnslaust með öllu.

Merkilegast er að spekingar CitiGroup, sem er bandarískur risabanki með tugþúsundir hámenntaðra „sérfræðinga” á snærum, segja í áliti sínu að ekki sála ætti að fjárfesta í bréfum Thomas Cook einfaldlega vegna þess að ferðaskrifstofur séu á líða undir lok. Ferðaskrifstofur notar enginn nú til dags nema ellilífeyrisþegar og letibikkjur. Aðrir skipuleggi sín ferðalög sjálfir og spari sér drjúgan skilding með því í ofanálag. Það mun bara stóraukast þegar fram líði stundir.

Alas, ekki hafði Euronews fyrir því að vitna í greinar okkar hér undanfarin ár en við sýknt og heilagt bent Íslendingum á að sjaldan eða aldrei fæst betri díll gegnum ferðaskrifstofur en með því að gera hlutina sjálf gegnum netið. Fræðingar CitiGroup aðeins sex árum á eftir Fararheill með þessa speki og enginn hér einu sinni tekið kúrs í fjármálafræði 101.

Neibbs, þetta segir sig eiginlega sjálft. Hvers vegna borga fúlgur til milliliða þegar þú getur gert og græjað sjálf/-ur fríið eða heimsreisuna? Það eina sem ferðaskrifstofur hafa upp á að bjóða nú til dags sem við getum ekki gert sjálf með dúlleríi í tölvunni er að tryggja heimferð ef ferðaþjónustufyrirtækið fer yfir um meðan við sleikjum sólina á Costa America. Þá fáum við heimferðina hvað sem tautar og raular.

Sá ávinningur er þó lítils virði ef ferðin sem við plönuðum sjálf gegnum netið sparar okkur tug- eða hundruði þúsunda króna umfram það sem ferðaskrifstofan heimtaði fyrir sama pakka. Þá höfum við alveg efni á að punga út extra fyrir dýrara flug ef í harðbakka slær.