Kannski halda fræðingar á skrifstofum Icelandair að fall Wow Air sé Fararheill út í eitt. Þeir virðast þó gleyma því að enn er töluverð samkeppni á ýmsum vinsælum leiðum til og frá landinu.

Nei sko! Engin samkeppni lengur og því þjóðráð að snarhækka fargjöldin og græða á þessu pakki þarna úti…

Höfum fylgst nokkuð grannt með verðlagningu á flugi til og frá eftir að flugfélag Skúla Mog var jarðsett vegna skulda.  Hér má til dæmis lesa um að fargjald á sardínufarrými Icelandair með ekkert innifalið til Parísar og heim aftur hækkaði um rúm 50 prósent á augabragði svo að segja.

Víkur þá sögunni að Kanada en þangað flýgur Icelandair mjög reglulega til vinsælla borga á borð við Vancouver, Montreal og Toronto. Við kíktum sem snöggvast á verðlag til og frá Toronto þetta sumarið en það er töluvert öflugur samkeppnisaðili enn á þeirri flugleiðinni; Air Canada.

Sé rýnt í helstu tölur kemur í ljós að lægsta fargjald fram og aftur í júnímánuði er með Air Canada og það hvorki meira né minna en 54% ódýrara en að fljúga með Icelandair.

Ókei, ekki útilokað að júní sé undantekningin sem sannar regluna og að Icelandair bjóði okkur mun betri kjör á öðrum tímum. Hvernig lítur þá júlí út þegar leitað er að lægsta verði þann mánuðinn:

Hmmm. Þetta hlýtur að vera einskær tilviljun. Það meikar engan sens að íslenska flugfélagið sé aftur og ítrekað að bjóða okkur afturendann í verðlagningu miðað við erlenda samkeppnisaðila. 38 prósenta verðmunur á sama klabbinu. Þetta er jú flugfélag sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða landsmanna og grægði á þeim bænum lækkar lífeyrissjóðsgreiðslur tugþúsunda Íslendinga þegar fram líða stundir.

Gefum þeim einn séns enn. Hvað er ódýrasta fargjaldið fram og aftur í ágústmánuði samkvæmt Google Flights mánudaginn 20. maí 2019?

Úpps! Rúmlega 40 prósenta verðmunur hér líka???

Hér skal hafa hugfast að um allra lægstu fargjöld er að ræða. Sardínufarrými, engin farangur innifalinn og aldeilis ekki matur um borð. Þetta er verðið á fokheldri íbúðinni þar sem flugfélagið þarf ekki að hafa fyrir neinu nema planta farþeganum í prumpsæti þegar þar að kemur. Alls engin þjónusta innifalin. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að greiða þetta 40 til 60 prósent hærra verð fyrir það er okkur hulin ráðgáta. Ekki síst sökum þess að flugfélagið er á lífi vegna peninganna okkar…