Hvað eigum við að halda þegar þingmenn flokks sem stofnaður var sérstaklega um náttúruvernd eyða tugmilljónum króna af skattfé til að menga umhverfið eins og þau framast geta?

Elskar náttúruna en flýgur samt meira en nokkur annar þingmaður. Rósa Björk í hengirúmi…

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttur og Steingrímur J. Sigfússon eru þeir þrír alþingismenn sem mest fljúga samkvæmt fregn RÚV í vikunni.

Viti borið fólk veit sem er að fátt mengar meira en flugferðir en samt valsar þetta yfirborðskennda „græna” fólk um allar trissur í flugi eins og enginn sé morgundagurinn. Enda er enginn morgundagurinn ef alvarlegustu spár um hlýnun jarðar ganga eftir.

Samkvæmt fregn RÚV neitar Rósa Björk að tjá sig um tíð ferðalög sín. Sem í okkar huga þýðir að hún er í raun þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem tjá sig aldrei um nokkuð misjafnt.

Og hvað með Lilju Rafney sem vill gjarnan eyða öllum helgum með fjölskyldu sinni á Suðureyri?

Gott og blessað en hvers vegna er skattborgarinn að punga út rúmum tveimur milljónum króna til að sú feita geti knúsað karlinn sinn? Við hin þurfum að punga út til að njóta samvista við fjölskyldu úti á landi og við fáum ekki milljón í þokkabót skattfrjálst fyrir húsnæði í bænum á meðan.

Og hver er afsökun Steingríms Joð?

Vinstri grænir kannski meira skítapakk en sjálfstæðismenn…