Lægsta verð án alls til Parísar og heim aftur í júlímánuði. Skjáskot Google Flights

Hefði þig langað til Parísar í júlímánuði 2018 hefði fargjald fram og aftur fengist á milli 18 og 25 þúsund krónur á kjaft nokkuð örugglega án farangurs með tveggja mánaða fyrirvara. Ári síðar og einu flugfélagi færra er lágmarksverð þann mánuðinn um 40 þúsund krónur og tæpar 45 þúsund krónur ef þú vilt út með Icelandair.

Einhver annar en við sem setjum spurningarmerki við slíkar ofurhækkanir?

Fjörtíu og fimm þúsund krónur fram og aftur til Parísar lágmarksverð í júlímánuði með Icelandair og það á sardínufarrými án alls. Ef þú þarft töskudruslu með hoppar kostnaðurinn á sama sardínufarrými upp í rúmar 52 þúsund krónur!!!

Það sem meira er; við könnuðum fyrir tveimur vikum lágmarkskostnað við sama flugið fram og aftur til Parísar eins og lesa má um hér. Þá fannst plebbasæti á sardínufarrými án alls fram og aftur niður í tæplega 30 þúsund krónur. Fargjaldið hefur því hækkað um rétt tæp 50 PRÓSENT á TVEIMUR VIKUM hjá Icelandair.

Það köllum við æði feita verðbólgu og auðvitað pjúra grægði út í eitt og kemur lítt á óvart enda tómir sjálfstæðismenn við stjórn flugfélagsins.

Ekki svo að skilja að Icelandair sé eitt um að hækka verð á þjónustunni um tugi prósenta eftir fall Wow Air. Það gera líka aðrir eins og lággjaldaflugfélagið Transavia sem einnig flýgur þessa leiðina. Munurinn samt sá að Icelandair er ekki að bjóða neitt meiri þjónustu en Transavia. Sætin þrengri en nálarauga, ekkert í boði án kostnaðar á leiðinni og síðast en ekki síst þá er Icelandair að fljúga margfalt oftar á milli en lággjaldaflugfélagið og það á miklu eldri reykspúandi rellum.

Hafi einhvern tíma leikið vafi á græðginni í Vatnsmýrinni ætti sá vafi að hverfa hraðar en vatnsdropi í Sahara. Sök sér að erlend flugfélög hækki fargjöldin lon og don en að glottandi stjórarnir hjá lífeyrissjóðsfyrirtækinu Icelandair leiki sama leik er vægast sagt miður geðslegt…