Allir geta á sig blómum bætt og það gildir líka um hina dýrðlegu höfuðborg Frakklands. Fái einn umsækjenda um borgarstjórastöðuna í París ráðið verður borgin enn meira heillandi innan tíðar.
Sá hefur í kollinum hugmyndir um að breyta tólf gömlum og löngu úreltum neðanjarðarlestarstöðvum í sundlaugar, klúbba, bari, keilusali svo dæmi séu tekin og hafa hugmyndirnar vakið athygli íbúa enda frumlegar.
Á myndinni til hliðar má sjá eina hugmyndina sem frambjóðandinn hefur látið birta en þar er einni slíkri stöð breytt með tiltölulega litlum tilkostnaði í þennan líka fínasta klúbb. Aðeins þarf að mála og innrétta og voilà.
Enn meira gaman að heimsækja París ef þessar hugmyndir verða að veruleika.








