Það er ekki lítið sem lögleiðing kannabisefna er að gera á skömmum tíma fyrir Colorado fylki í Bandaríkjunum. Fyrsta mánuðinn sem leyfilegt var að selja og kaupa kannabis úti í næstu verslun jókst ferðamannafjöldi til fylkisins um 30 prósent.

Hartnær 70 útsölustaðir fyrir kannabis finnast í Denver og vel yfir hundrað í allri Colorado. Mynd wallyg
Frá þessu greinir stærsta dagblað fylkisins, Denver Post, en frá og með síðustu áramótum getur hver sem vill keypt kannabisefni og notið þeirra á almannafæri ef því er að skipta. Hið eina sem hart er fylgst með er að verslanirnar selji ekki efni sín neinum undir 21 árs aldri.
Samkvæmt fregnum hefur þetta gengið afar smurt fyrir sig frá áramótum og þrátt fyrir leit á netinu finnast engar fréttir um átök, mótmæli eða önnur leiðindi eftir að sala fíkniefnisins var leyfð. Þvert á móti ef eitthvað er.
Sem stemmir við reynslu fólks frá Amsteradam og öðrum stöðum í Hollandi og í Portúgal þar sem slík efni og önnur sterkari eru einnig leyfð.
Icelandair flýgur þráðbeint til Denver og fyrir þá sem ekki eru vissir hvert skal halda er hér afar fínn listi frá Denver Post.







