Þann fimmta mars næstkomandi etja kappi landslið Wales og Íslands í knattspyrnu vináttulandsleik í Cardiff og miðar eru þegar komnir í sölu.

Landsliðið okkar mætir Wales í byrjun mars og þangað ekki svo erfitt að komast. Mynd Helgi Halldórsson/Freddi
Alla jafna eru vináttuleikir ekki framúrskarandi freistandi en það sem gerir þennan safaríkari en ella er tvennt. Annars vegar verður frábært að sjá íslensku strákana takast á við dýrasta knattspyrnumanna heims, Gareth Bale, og hins vegar að til Cardiff er ekki svo ýkja flókið að komast.
Fyrir nokkru hóf easyJet reglulegar áætlunarferðir til Bristol en frá Bristol er aðeins tæplega klukkustundar rúntur til Cardiff. Það er reyndar ekki ókeypis að fljúga miðað við kostnað á vef easyJet þegar þetta er skrifað því flug fram og aftur kostar tæplega 50 þúsund krónur. Í þokkabót þarf að fljúga út á sunnudegi en leikurinn fer fram á miðvikudegi.
En það er smáatriði fyrir áhugasama. Töluvert er hægt að dunda í Bristol og ekki síður tekur daginn að rölta um Cardiff. Svo skemmir varla að vilji fólk versla er verðlag hér almennt aðeins lægra en gengur og gerist í London svo dæmi sé tekið.
Þeir Íslendingar sem vilja miða á leikinn verða að gjöra svo vel og hringja í miðasölu Cardiff City Stadium í síma 0845 345 1400 og bóka.
PS: Aron Gunnar Einarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, leikur með Cardiff City. Hver veit nema hægt sé að heilsa upp á karlinn í borginni.







