Það er meira ryk í íslenskum fjölmiðlum en finnst í Kalahari eyðimörkinni. Nú vitnar RÚV í verðkönnun Dohop sem er ómarktæk með öllu og birtir sem heilagan sannleika.

Fleiri fjölmiðlum en Vísi finnst besta mál að varpa fram marklausum verðkönnunum Dohop

Fleiri fjölmiðlum en Vísi finnst besta mál að varpa fram marklausum verðkönnunum Dohop

Fyrirsögn á grein á vef RÚV er „Erlend flugfélög ekki ódýrari“ og vitnað í nýlega könnun Dohop á flugfargjöldum til fimm áfangastaða næstu átta vikurnar. Svo er dregið strax úr fyrirsögninni í inngangi þar sem fram kemur að íslensk flugfélög bjóði í MÖRGUM tilfellum betra verð á flugi  en erlend flugfélög!

Um að gera að rugla neytendur á Íslandi enn meira en orðið er. Fararheill hefur töluvert fjallað um Dohop sem er í meirihlutaeigu Frosta Sigurjónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, og bent á alvarlega bresti í verðkönnunum fyrirtækisins. Í þeim er til að mynda ekki þjónustugjöld tekin inn í pakkann sem þarf þó að greiða til að komast í loftið. Í þeim eru heldur ekki borin saman öll þau flugfélög sem til og frá landinu fljúga. Varla dytti fréttastofum í hug að birta könnun um fylgi stjórnmálaflokka og sleppa Sjálfstæðisflokki. Ergo: marklaust plagg

Ódýrasta fargjaldið til Kaupmannahafnar næstu átta vikurnar samkvæmt Dohop er með Wow Air en flug fram og aftur fæst ódýrast kringum 37 þúsund krónur. En nenni fólk að fletta á vef Primera Air finnst þetta hér að neðan samstundis. Um sjö þúsund krónum lægra verð en það sem Dohop staðhæfir að sé lægst til Kaupmannahafnar.

Undarlegt hvað auðvelt er að koma bulli á framfæri í fjölmiðlum hérlendis og blekkja þúsundir.

do9