Annaðhvort eru helstu flugfélög sem hingað og héðan fljúga farin að taka á honum stóra sínum gagnvart viðskiptavinum ellegar íslenskir neytendur eru algjörlega úti á þekju hvað rétt þeirra varðar.

Eru flugfélögin að taka sig mjög á eða útskýrir eitthvað annað að kvörtunum fækkar mikið?

Eru flugfélögin að taka sig mjög á eða útskýrir eitthvað annað að kvörtunum fækkar mikið?

Þetta má lesa úr þeirri staðreynd að nú í árslok 2013 eru kvartanir sem borist hafa Flugmálastjórn / Samgöngustofu vegna mistaka eða slælegrar þjónustu flugfélaganna mun færri en undanfarin þrjú ár.  Aðeins hafa 19 kvartanir verið teknar fyrir á árinu samanborið við 84 árið 2012 og 81 árið 2011. Kvörtunum hefur þannig fækkað um 77 prósent milli ára hvorki meira né minna.

Hafa skal í huga að sökum þess hve ferli kvartana er langt getur tekið nokkra mánuði að fá niðurstöðu í hvert og eitt mál og þess vegna er meirihluti þeirra mála sem tekin voru fyrir þetta árið vegna atvika frá árinu 2012.

Það er Icelandair sem er ótvíræður sigurvegari árið 2013. Alls tíu sinnum bárust kvartanir vegna tafa á flugi eða skemmda á munum. Í öll skiptin var Icelandair dæmt til greiðslu skaðabóta. Þrívegis féll dómur vegna Iceland Express og þrívegis vegna easyJet. Allir dómar kærendum í hag. Wow Air og Primera Air töpuðu sitt hvoru málinu.

Ritstjórn Fararheill fyrir sitt leyti er ekki sannfærð um að flugfélögin séu að standa sig 77 prósentum betur nú en í fyrra þó engin vafi leiki á að Wow Air stendur sig mun betur en gamla Iceland Express hvað varðar tafir og seinkanir. Miðað við að einhverjar allra mest lesnu fregnir á vef Fararheill varða drjúgar bætur og réttindi fólks virðist okkur heldur að fólk almennt sé ekki mjög meðvitað um réttindi sín.

Sé hitt raunin að flugfélögin séu að bæta sig er það mikið fagnaðarefni fyrir alla.