Við höfum að undanförnu fengið töluvert af pósti þar sem óskað er eftir að við bendum á skemmri ferðir og ódýrar fyrir eða um jólin. Ekki aðventu- eða verslunarferðir heldur virðast ýmsir einfaldlega að þurfa að komast frá stundarkorn og þá gjarnan geta sólað sig aðeins.

Þrjár fýsilegar ferðir frá Danmörku í næsta mánuði

Þrjár fýsilegar ferðir frá Danmörku í næsta mánuði. Mynd rome.net

Það er reyndar skiljanlegt. Sumarið okkar var jú upp á fáa fiska og veturinn álíka harður og alltaf.

Við leituðum því uppi þrjár ferðir sem kannski fara ekki í bækur fyrir nein stórkostlegheit en eru allar þokkalega ódýrar á pyngju, allar í boði frá Kaupmannahöfn þangað sem hægt er að komast tiltölulega ódýrt héðan og allar með ferðaskrifstofum sem traustar þykja vera.

A) ÞRÍR DAGAR Í RÓM

Danska ferðaskrifstofan Rejsefeber er að bjóða þriggja nátta ferðir til Rómar í desember. Gott fjögurra stjörnu hótel með morgunverði í þessari frábæru borg auk flugs með nýjum vélum Norwegian fyrir 39.740 krónur á mann miðað við tvo saman. Vegvísir Fararheill til Rómar.

B) VIKA Í MADEIRA

Aðeins lengri ferð fyrir sólarþyrsta en vissulega á fínu verði eða 138 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman í viku á allbærilegu hóteli með svölum til hafs. Þessi í boði Kulturrejser Europa þann 7. desember. Vegvísir Fararheill til Funchal.

C) SEXTÁN DAGAR Á KÚBU

Hvernig hljóma áramót á Kúbu? Þar er allt að breytast hratt og gaman að vitna það persónulega. Hér er um að ræða sextán daga ferð frá Billund en farið er um eyjuna alla og upp á ýmsu góðu tekið. Mínusinn kannski sá að brottför er 25. desember og verðmiðinn er reyndar 328 þúsund á mann. Þessi ferð í boði Svane Rejser sem er gömul og góð ferðaskrifstofa. Vegvísir Fararheill til Havana hér.