Vegir Wow Air eru órannsakanlegir. Nýverið tilkynnti fyrirtækið um ráðningu manns í starf flugverndarstjóra en sama hvað við gúgglum eða gluggum í orðabækur; við erum engu nær um hvað flugverndarstjóri er eða gerir.
Er hættulegt að fljúga með Wow Air? Er eitthvað um borð sem þarf að vernda fyrir? Eða er þetta flugverndarstjóri á borð við þá sem amerísku flugfélögin og ísraelska flugfélagið El Al nota og flýgur til og frá vopnaður skammbyssu ef ske kynni að eitthvað gerðist um borð?
Nú þýðir ekkert fyrir Fararheill að forvitnast enda fyrir allnokkru komin á bannlista Wow Air fyrir þær miklu sakir að benda á það sem aflaga hefur farið. En þó stóru fjölmiðlarnir hafi fjallað um málið þá birta þeir aðeins tilkynningu Wow Air um ráðninguna. Engum dettur í hug að spyrja hvað viðkomandi gerir eða eigi að gera?
Það gefur þó vísbendingar að sá sem ráðinn var hefur mikla reynslu af löggæslustörfum.
Fyrir okkar leyti viljum við gjarnan vita ef um borð í vélum Wow Air er vopnaður maður. Og sé svo, hver á þá að passa hann?








