Ekkert skal fullyrt en ritstjórn Fararheill rekur ekki minni til að einn innlendur miðill hafi fjallað um þá æði merkilegu staðreynd að Flugmálastjórn Bandaríkjanna hefur nú formlega aflétt banni við notkun rafeindatækja í flugtaki og lendingu.
Það þykja okkur tíðindi eftir að hafa lent í rimmu við saklausa flugþjóna um árabil fyrir að starta Angry Birds strax og við erum sest um borð og vera að klára leikinn þegar tilkynnt er um lendingu.
Fararheill hefur áður og ítrekað fjallað um þessa fásinnu að banna notkun rafeindatækja í flugi. Einfaldlega sökum þess að ekki ein rannsókn nokkru sinni hefur leitt í ljós neina hættu sökum þess. Flugmenn víða hafa notast við spjaldtölvur í flugtaki og lendingu um árabil víða í Evrópu og ekkert vesen.
Bandaríska flugmálastjórnin gengur reyndar ekki alla leið því áfram verður óleyfilegt að hringja eða senda sms í flugtaki eða lendingu en ekki þarf lengur að slökkva á græjunni.
Reglurnar nýju taka gildi í lok ársins en þó vel rúm vika sé síðan þetta var formlega tilkynnt vestanhafs er ekki einn staf að finna á vef Flugmálastjórnar. Síðasta tilkynning á vef þeirrar stofnunar varðar samþykki á verklegu námi vegna tegundaráritana. Hvað sem það nú þýðir.
Það væri náttúrulega eftir öðru að íslensk yfirvöld reki lestina með reglur sem eru tómt rugl og vitleysa.








