Allir sem hafa eytt stundarkorni utan helstu ferðamannastaða Berlínar vita að þar er gróska í hverju hefðbundnu skoti sem og skúmaskotum líka. Einmitt sama gróskan og smitar út frá sér um alla borg og gerir Berlín svo yndislega lifandi og skemmtilega og raun ber vitni.

Merkilegur fjöldi verslana og kaffihúsa í Berlín eru farin að taka bitcoins

Merkilegur fjöldi verslana og kaffihúsa í Berlín eru farin að taka bitcoins

Það var einmitt í Berlín fyrir rúmri viku sem Fararheill keypti sér kaffi og eina kleinu með á litlu kaffihúsi í Pankow hverfinu og greiddi í fyrsta skipti fyrir með bitcoins.

Bitcoin er greiðslumáti framtíðarinnar segja sumir og miðað við fyrstu viðtökur og hversu fljótt boðskapurinn er að dreifast kann það að vera rétt. Allavega eru allir þeir sem keyptu bitcoins á upphafsdögum bylgjunnar nú áhyggjulausir um alla framtíð á sólarströndum í Karíbahafinu.

Í öllu falli eru nú rúmlega þrettán þúsund staðir sem taka við bitcoins sem greiðslu fyrir vörur eða þjónustu og í Berlín einni saman eru nú yfir hundrað sem skarta bitcoin merkinu í glugga sínum við hlið límmiða kreditkortafyrirtækja.

Segja má, í afar grófu máli fyrir þá sem ekki þekkja, að bitcoin er rafrænt greiðslukerfi. Með bitcoins í vasanum, eða snjallsímanum öllu heldur, er hægt að greiða fyrir ýmsar vörur og þjónustu gegnum símann. Ekki ósvipað því sem nú gerist hjá bönkum og greiðslukortafyrirtækjum nema sá er munurinn að engir bankar eða greiðslukortafyrirtæki koma nálægt viðskiptunum. Þetta er rafrænt greiðslukerfi sem enginn stýrir með öðrum orðum.

Af því leiðir að notendur greiða engin gjöld af einu né neinu. Enginn þarf að punga út tíkalli í ársgjald til að geta montað sig af gulllituðu plastkorti í næstu verslun. Þaðan af síður getur hver sem er hjá bönkum eða greiðslukortafyrirtækjum skoðað í þaula hvað hver og einn er að kaupa, hvenær og jafnvel til hvers.

Hægt er að kynna sér bitcoins kerfið í þaula víða í netheimum en trixið er að næla sér í bitcoin-appið í snjallsímann. Að því gefnu að þú eigir bitcoin inneign, sem hægt er að kaupa fyrir seðla á netinu, er ofur einfaldlega hægt að brúka það app næst þegar þú færð þér kaffi á stað sem tekur bitcoin. Þú ofur einfaldlega skannar sérstakan kóða sem hver og einn söluaðili er með og upphæðin fyrir því sem þú keyptir rennur samstundis til söluaðilans. Ekkert vesen, ekkert klink, engir vinnufélagar hjá Visa að skellihlæja að manninum sem var að kaupa elektróníska endaþarms-stuðarann með gullkortinu sínu í Shanghai.

Það segir kannski sitt að vera EKKI með á nótunum að um nýliðna helgi eyddi Landsbanki okkar skattborgara stórfé í tilgangslitla ráðstefnu um hversu litla framtíð peningaseðlar ættu sér í heiminum. Best væri að hafa allt rafrænt og það væri langódýrast líka fyrir þjóðarbúið. En ekki var þar einu orði eytt í mest vaxandi gjaldmiðil samtímans; bitcoin.