Eðli málsins samkvæmt ríkir mikil eftirvænting fyrir seinni umspilsleik Króatíu og Íslands um laust sæti á heimsmeistarakeppninni í Brasilíu næsta sumar. Það yrði sannarlega afrek ef íslenska liðið kemst alla leið og fari svo eru ábyggilega nokkrir Frónbúar sem breyta áætlunum sínum fyrir næsta sumar snarlega hvort sem frúnni líkar betur eða verr.
Sök sér að vilja heimsækja Brasilíu. Þangað hefur Fararheill farið tvívegis í lengri ferðir síðustu fimm ár og notið hverrar mínútu ef frá er talið að skoða bankareikninginn að ferð lokinni. Þangað er dýrt að komast og ætli menn sér annað og meira en hanga á einum og sama staðnum er tiltölulega dýrt að þvælast þar um líka.
Almennt má ganga út frá því sem vísu að aldrei sé komist alla leiðina til borga í Brasilíu undir 260 þúsund krónur alla leið frá Íslandi.
Það er gróflega lágmarksverð með stærri flugfélögum hvort sem er frá London, París, Berlín eða Madríd að meðtöldu fargjaldinu til og frá Íslandi. Samkvæmt upplýsingum okkar frá innlendu flugfélögunum stendur ekki til að bjóða neinar sérferðir til Brasilíu næsta sumar og aðrir möguleikar því ekki í boði en skipta um vél til að komast.
Þetta kann að breytast til batnaðar þegar nær dregur og fleiri aðilar bjóða fleiri ferðir á staðinn en hæpið er að vonast eftir að komast þangað suðureftir undir 200 þúsund krónum í allra besta falli.
Þetta verður enn kostnaðarsamara ef við gefum okkur að Ísland komist alla leið og þurfi að spila leiki sína til dæmis í Manaus. Þangað er átta stunda flug til og frá Ríó de Janeiro og bæta þarf við hundrað þúsund krónum í kostnað.
En að komast á staðinn er ekki flókið ef peningar eru í buddu og vilji í kolli. Það sem gæti orðið öllu flóknara er að elta landsliðið og sjá leiki þess fari svo að Ísland spili á HM. Það er nefninlega ekki gengið að miðum vísum á leiki á HM. Þeim er deilt út eftir sérstöku kerfi Alþjóða knattspyrnusambandsins og þar eiga Íslendingar engan forgang á aðra jarðarbúa.
Þegar er búið að úthluta þriðjungi miða og næsta bunki af miðum verður seldur strax eftir áramótin þegar búið er að draga í riðla í keppninni. Þriðji og síðasti bunkinn fer svo í sölu í apríl. Allir geta sótt um miða en eðlilega eru margir um hituna og drátturinn er í stíl við lottóið.
Jafnvel sá sem verður svo heppinn að fá miða þarf að greiða nokkuð duglega fyrir. Allra ódýrustu miðar á leiki í riðlakeppninni kosta um ellefu þúsund krónur. Þau sæti eru allra efst í stúkunum og er hálf lamaður staður til að fylgjast grannt með leik. Ætli menn sér að sitja í betra sæti hækkar miðaverð í riðlakeppninni upp í nítján þúsund krónur. Miðaverð hækkar svo töluvert meira þegar lengra er komið í keppninni.
Að síðustu er kostnaður við gistingu og afþreyingu mun hærri en í meðalári eins og alltaf þegar eftirspurn er meiri en framboð. Okkur reiknast til að tveggja vikna dvöl í Brasilíu næsta sumar, einn leikur kannski sem krefjast ferðalags innanlands kosti einn einstakling ekki mikið undir 800 þúsund krónum. Jafnvel þó sparlega sé farið. Það er væn upphæð fyrir flesta launþega í landinu.
-ls








