Hægt er að færa afskaplega góð rök fyrir að fá lönd eru jafn indæl heimsóknar í október og Portúgal. Þangað er þægilega stutt að fljúga, hitastigið gott en sjaldan of heitt, verðlag í landinu töluvert undir því sem gerist í Evrópu og þar er svo margt merkilegt að sjá og skoða.
Í október býður Fararheill upp á svo safaríka ferð um Portúgal endilangt að lífrænt ræktaðar appelsínur verða öfundsjúkar. Um er að ræða tólf nátta ferð um öll héruð landsins með þægilegu stoppi inn á milli. Ferðaáætlun hönnuð með ykkar þarfir í huga, hópurinn alls ekki of stór og þjappast saman á fyrstu metrunum og við étum hattana okkar án salts og pipars haldi einhver heim á leið með skeifu á vör.
Við erum ekki venjuleg ferðaskrifstofa og höfum ekki áhuga á því. Þar snúast hlutirnir oftar en ekki um að græða peninga í stað þess að gefa viðskiptavinum eitthvað ógleymanlegt.
Okkar ferðir snúast um að hafa gaman saman og það helst hundrað prósent. Þess vegna tökum við aðeins lítinn hóp í einu og aldrei fleiri en fjórtán manns. Fararstjóri er með alla ferðina SEM HEFUR REYNSLU AF ÞVÍ SVÆÐI SEM UM RÆÐIR. Því skammt að leita ef eitthvað kemur upp á eða einhver þarfnast aðstoðar eða upplýsinga.
Nokkur atriði sem hafa ber í huga:
- Lágmarks- og hámarksfjöldi í þessari ferð er 14 manns. Í stað þess að láta fólk greiða fyrirfram þá skráið þig ykkur einfaldlega sem áhugasöm gegnum póstinn fararheill@fararheill.is. Þegar og ef tiltekinn fjöldi lýsir áhuga höfum við samband við alla. Enginn þarf að punga út neinu fé nema ferðin verði að veruleika.
- Nákvæm ferðalýsing er hér til hliðar en hafa skal í huga að innifalið er EKKI verð á flugi. Áhugasamir verða sjálfir að koma sér til Porto á tilsettum tíma þar sem við tökum á móti öllum með bros á vör og gott betur. Sömuleiðis verður fólk sjálft að kaupa flug frá Lissabon. En auðvitað aðstoðum við við flugið og standi vilji til að sameinast um flug til og frá höfum við milligöngu um það. Við komum hópnum í samband áður en þið leggið í hann. Þannig er hægt að hætta strax án þess að greiða króna ef Smári súri eða Gulla gleiða sem þú þolir ekki eru með í för.
- Það er ekkert innifalið í verði nema það sem sérstaklega er tekið fram.
- Lokaverð á einstakling verður ljóst þegar og ef tilskilinn fjöldi fólks lýsir áhuga.
Fararstjóri bíður allra og kemur öllum saman í Porto áður en formleg dagskrá hefst. Þannig gerum við ráð fyrir að fólk hafi einn dag fyrir og einn dag eftir að ferðaáætlun hefst og lýkur.
Hin formlega en þó lauslega dagskrá hefst svona:
DAGUR 1
Hópurinn samankominn á ágætu hóteli í Porto og við ósköp einfaldlega byrjum á að sofa út. Óþarfi að gera lítið úr því. Þú ert jú í fríi og það gerir öllum gott að sofa eins lengi og fólk vill. Í öllu falli vonum við að um hádegisbil séu allir komnir á lappir og í gír því þá höldum við rakleitt á lítinn útiveitingastað og fyllum mallakút af réttum frá héraðinu. Maturinn er ekki innifalinn í verði en við vitum upp á hár hvar hægt er að njóta góðs matar og víns í hádeginu fyrir slikk. Falli fólki ekki staðurinn í geð er öllum frjálst að kíkja annað og við gefum öllum kort ef óskað er eftir.
Þegar matur er kominn í mannskapinn og kannski farið að örla á brosi hjá einum og einum höldum við af stað og röltum um hinn gamla miðbæ Porto. Við gætum haldið ræðu um þann frábæra stað sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna en gerum það bara á röltinu. Við förum löturhægt yfir, njótum og stoppum ef okkur sýnist svo. Hér er sannarlega margt fallegt og eins margt miður fallegt. Við þvælumst líka aðeins um með sporvögnum og tökum inn allt það helsta.
Þegar líða fer á daginn heimsækjum við Portvínsstofnunina. Portvín, eða púrtvín, er upprunnið frá Porto og nefnt eftir borginni. Þar er hægt að bragða á hinum ýmsu púrtvínum og fá aldeilis fínt útsýni í kaupbæti.
Þá er kvöldið gengið í garð og við höldum á hótelið til að sturta okkur og hvíla bein oggustund áður en við höldum á góðan nálægan veitingastað og borðum eins og okkur lystir áður en við höldum til náða.
DAGUR 2:
Við drífum okkur af stað eftir morgunverð og um borð í fljótabát sem flytur okkur sem leið liggur upp Douro-ánna. Hér er varla blettur sem ekki er ræktaður og það oftar en ekki af vínbændum. Hér líðum við áfram alla leið til bæjarins Peso de Régua þar sem við förum í land og plöntum okkur á fínt fimm stjörnu hótel við árbakkann. Þar gleðjumst við saman eins og Íslendinga er siður. Hótelið er eitt fárra þar sem í boði er fyrir áhugasama að kynna sér í þaula matargerð í Douro-héraðinu.
Næsti dagur er eins og lífið sjálft; frjáls. Hér er fullt af fínum göngustígum og bærinn sjálfur sleppur. Við kíkjum líka aðeins á víngerðir í grenndinni og smökkum á mjöðnum. Ef svo vel vill til að uppskera í Douro er í seinni kantinum eru meiri líkur en minni á að fólk geti tekið þátt í víngerðinni sjálfri ef áhugi er fyrir hendi. Engu er þó hægt að lofa í þeim efnum.
Við ljúkum leik á fínum veitingastað í bænum áður en við höldum á hótelið.
DAGUR 3:
Við leggjum í hann uppúr hádegi í fremur stutta rútuferð til Feneyja Portúgal; borgarinnar Aveiro.
Þó hér finnist bátar keimlíkir gondólunum í ítölsku borginni og skurðir víða um borgina er þetta þó kjánalegur samanburður. Hér er töluvert að sjá og skoða og það gerum við og endum á ströndinni en hér eru æði fínar strendur. Hér er líka ágæt kaup hægt að gera í verslunum.
Um kvöldið förum við saman út að borða og njótum sem fyrr.
DAGUR 4:
Úthvíld og örlítið sólbrennd setjumst við um borð í rútu og ökum sem leið liggur beinustu leið til hinnar fornu borgar Coimbra. Það er skammur túr og enginn fær illt í rass eða finnur til leiðinda.
Í borginni komum við okkur fyrir á góðu hóteli og þegar allir sem það vilja eru klárir höldum við af stað í góðan göngutúr um gamla bæinn. Coimbra er heimsþekkt fyrir góðan og gamlan háskóla sinn og hér er óvenju mikill fjöldi ungs fólks. Götur eru hér þröngari en gallabuxur Ásdísar Rán og meðfylgjandi stemmning sem með fylgir.
Við erum í fríi og því alls engin pressa. Við njótum frameftir degi og gott ef það er ekki tími til að sleikja sólina stundarkorn líka. Endum daginn á ljúfum veitingastað.
DAGUR 5:
Við höldum áleiðis að ströndinni en í rúmlega klukkustundar fjarlægð er bærinn Figueira da Foz eða Figueira eins og hann er kallaður. Ekkert svaka spennó í arkitektúrskum skilningi en því yndislegri ef risastórar strendur heilla fólkið. Heimamenn segja að ströndin sé svo „góð“ að labbir þú alla leið frá bænum verði fætur þínir brenndir löngu áður en komið er að sjávarmáli. Við látum kannski á það reyna.
Það er óvenju mikið líf hér og ástæðan sú að hér eru einhverjar mestu öldur við ströndina sem hugsast getur. Það heillar þúsundir fólks sem stundar sjósport af einhverjum toga og það fólk er út um allt.
Við njótum okkar fram eftir degi. Skoðum það sem skoðunar er vert en að öðru leyti er þetta hvíld fyrir gamla fætur og meira spáð í mjög og mat en þvæling hingað og þangað.
DAGUR 6:
Upp í rútu og nú er tveggja stunda rúntur framundan alla leið til borgarinnar Batalho. Borgin sú falleg og skoðunar virði en aðalatriðið er að hún er miðsvæðis því við ætlum aðeins að skoða okkur um hér.
Við kíkjum til þriggja smábæja hér; Porto de Mós þar sem gefur að líta stórkostlegt hellakerfi, bæinn Fatima sem er víðfrægur meðal kristinna enda á sjálf María mey að hafa birst fólki hér í denn tíð. Að síðustu skjótumst við til bæjarins Alcobaca þar sem er að finna Alcobaca musterið sem leikið hefur stórt hlutverk í sögu þjóðarinnar.
DAGUR 7:
Úthvíld og fersk höldum við leiðinni áfram og áfangastaðurinn er hin stórkostlegi bær Sintra. Við erum samt ekkert að flýta okkur og komum við bæði í hinum stórfallega Óbidos sem umkringdur er heillegasta borgarvirki í landinu og þótt víðar væri leitað. Við gerum líka stopp í bænum Ericeira og njótum okkar þar stundarkorn áður en ekið verður til Sintra. Sá síðastnefndi er sá bær í landinu sem heimamenn sjálfir kysu helst að vera í fríi.
Varla fyrirfinnst jafn ævintýralegur bær og Sintra með sinn stórkostlega kastala og stórfurðulegu byggingar. Hér er töluvert af ferðafólki alla jafna en samt er bærinn þannig að lítið verður við það vart sem alltaf er plús á ferðalögum.
Við gistum í Sintra
DAGUR 8:
Við erum sultuslök áfram í Sintra enda hér margt að skoða og gott að hafa tímann fyrir sér. Við skoðum allt sem skoða þarf hér og gætum þess að hafa nóg að bíta og brenna þess á milli.
Sofum aðra nótt hér.
DAGUR 9:
Hér dveljum við heilan dag í viðbót, gerum okkur dagamun að kveldi á einum af mörgum góðum veitingastöðum hér. Í boði líka að skreppa á ströndina, spila golf eða njóta bara út í æsar.
DAGUR 10:
Sofum aðeins út áður en við tökum stefnuna suður og rekum inn nefið í bæjunum Cascais og Estoril sem báðir eru skemmtilegir heimsóknar.
Þegar líða fer á daginn ættum við að sjá til höfuðborgarinnar Lissabon sem er kjaftfull af forvitnilegum hlutum,.
Við komum okkur fyrir á hótelinu og förum strax út að borða um kvöldið.
DAGUR 11:
Heill dagur framundan af skoðunarferðum en þó með okkar lagi, í rólegheitum og hugmyndin að slaka í og með.
Borgin er víðfem og margt að sjá en við byrjum á miðborgarhlutanum og sjáum til hversu hress við erum hversu mikið við reynum að komast yfir.
DAGUR 12:
Lokadagurinn okkar saman og við ljúkum skoðunarferð okkar um borgina. Gefist tími til er ekki útilokað að fara aðeins út fyrir borgina því hún er ekki síður falleg úr fjarska.
Við borðum saman um kvöldið og njótum í góðra vina hópi.
DAGUR 13:
Áfram í Lissabon en þó fararstjóri sé enn til trausts og halds er hugmyndin hér að nýta daginn til verslunar eða jafnvel njóta rómantíkur tvö saman. Það er því engin formleg dagskrá en auðvitað hægt að halda hópinn kjósi fólk það.
Lokanóttin í Lissabon áður en flogið er af stað um morguninn eða för haldið áfram á eigin spýtur.






