Ritstjórn Fararheill viðurkennir fúslega að það fýkur í okkur reglulega þegar við skoðum hvað þegnar annarra vestrænna landa geta ferðast villt og galið til nyrstu horna heimsins og það fyrir klink og ingenting.

Íslendingar þekkja líklega ekkert til Dien Bien Phu í Víetnam en á þessum fallega stað vörpuðu Bandaríkjamenn hvað flestum sprengjum sínum á varnarlaust fólkið í Víetnamstríðinu. Staðurinn heimsóttur í sérdeilis flottri ferð.
Það fýkur í okkur sökum þess að í þau skipti sem ferðaskrifstofur hérlendis bjóða upp á eitthvað „spennandi“ ævintýri á fjarlægum slóðum þá kostar það blóð, svita, tár og milljón kall sem fer rakleitt á tólf mánaða Vísa hjá þorra landsmanna.
Öðru máli gegnir um siðmenntaðar þjóðir eins og Noreg. Þó nánast allt þar sé dýrara en hér á Fróni og launatekjur að meðaltali helmingi hærri en hjá Íslendingum býðst því ágæta fólki að skottast hingað og þangað fyrir brot af því sem Íslendingar þurfa að greiða fyrir sömu vöru.
Góðu Fararheilli þá eru viðskipti milli landa orðin tiltölulega einföld sem merkir að Íslendingar geta smellt sér í fimmtán nátta súpertúr til Víetnam frá Osló seinni hluta ársins fyrir svo mikið sem rétt rúmlega 200 þúsund krónur á kjaft!
Víetnam er eitt fallegasta land heims og fólkið þar almennt yndislegra en Dorrit Moussaieff á sterum. Vefferðaskrifstofan Travelbird er þessa stundina að bjóða rúmlega tveggja vikna Víetnam-túr með massamiklu inniföldu frá Osló niður í 189 þúsund á kjaft eða um 370 þúsund á par eða hjón. Ofan á það leggst flugið héðan til Osló og heim aftur en með góðum fyrirvara kostar það vart meira en 30 þúsund á mann með tösku.
Og hvað er svona mikið innifalið? Til dæmis er stoppað á alls sjö mismunandi þorpum/borgum í landinu með enskumælandi fararstjóra. Flott gisting á öllum stöðum plús matur í stöku tilfellum. Sigling um hinn fræga Halong-flóa fylgir með í pakkanum og fólk má hafa með sér tæplega 40 kíló af farangri. Nánar um þessa snilld hér.
Lífið er stutt. Út með þig 🙂
- Við höfum um tveggja ára skeið bent Íslendingum á ferðir gegnum Travelbird í Noregi og vitum af því að fólk héðan hefur komist vandræðalaust í ferðir með þeim.
- Vegabréfsáritun þarf til Víetnam og hana þarf að sækja um í sendiráði Víetnam í Kaupmannahöfn. Óhætt að gera ráð fyrir einum mánuði að afgreiða það hið minnsta.
- Ofangreint verð er það lægsta sem finnst á ýmsum brottförum frá Osló til Víetnam en slíkar ferðir eru í boði allt þetta ár. Október og nóvember finnst lægsta verð nánast alla dagana.
- Miðað við gengi krónu gagnvart norskri krónu 10. febrúar 2017.







