Á sama tíma og Icelandair tilkynnir um sitt næstbesta rekstrarár frá upphafi sendir forstjórinn frá sér tilkynningu sem skilja má á þann veg að allt sé í kalda koli hjá fyrirtækinu og framundan séu umfangsmiklar breytingar á rekstrinum. Já, og best að nota tækifærið og móðga heila kynslóð af fólki svona líka.

Brosið hvarf sem dögg fyrir sólu hjá forstjóra Icelandair og formanni Samtaka atvinnulífsins. Mynd fréttabréf Samtaka atvinnulífsins
Aumingja Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Honum orðið svo annt um ást og umhyggju hluthafa Icelandair, og kjósenda Samtaka atvinnulífsins, að karlanginn ætlar að grípa til róttækra breytinga á rekstri fyrirtækis síns til að hluthafar fái nú sitt og verði sáttir. Það ekki seinna en núna eða mjög fljótlega. Björgólfur ætlar sér að koma til móts við „me,me,me“ kynslóðina en forstjóra Icelandair finnst greinilega skemmtilegt að gera gys að ungu fólki.
Það allavega, má lesa milli lína í síðustu fréttatilkynningu Icelandair Group, en þar sendir Björgólfur Jóhannsson, fyrrum síldarstjóri á Neskaupsstað, frá sér hálfgerða stríðsyfirlýsingu. Aðgerða sé þörf hjá fyrirtækinu og til aðgerða verði gripið á öllum starfsstöðvum eigi síðar en í gær.
Athygli vekur, en kemur ekki á óvart, að forstjóri eins stærsta fyrirtækis landsins, kemst upp með að senda frá sér grafalvarlega fréttatilkynningu án þess að einn einasti fjölmiðill reyni að ná tali af karli til að fá botn í ýmislegt það sem stjórinn gefur til kynna. Hvaða aðgerða? Fjöldauppsagnir á döfinni? Ætlar fyrirtækið í lággjaldapakkann? Bæta arfaslaka þjónustu? Hætta að bjóða upp á kaffi? Leggja af innanlandsflugið? Selja töskumiða? Hvers vegna var þörf á að móðga unga fólkið og hvað þykist gamall, hvítur silfurpungur vita um hvað unga kynslóðin vill?
Enginn veit því enginn spyr.
Markaðurinn veit best segir erlent orðatiltæki og sé það rétt gæti Björgólfur senn fengið spark í afturendann ef ekki tekst að stöðva linnulítið fall Icelandair Group á hlutabréfamarkaði. Þegar þetta er skrifað hefur gengi félagsins hrapað um rúmlega 30 prósent á einni viku eða svo.

Ný málning og norðurljósasjó um borð. En vélarnar eru eldgamlar og þjónustan ekki upp á marga fiska heldur.
Í fréttatilkynningunni segir svo: „Meðal aðgerða eru breytingar á uppbyggingu á fargjöldum og vöruframboði Icelandair. Þessar breytingar, sem unnið hefur verið að frá því í haust, eru til að mæta aukinni samkeppni, breyttum aðstæðum á mörkuðum fyrirtækisins og breytingum á neysluvenjum flugfarþega. Markmið breytinganna er að ná til nýrra viðskiptavina auka sýnileika félagsins í leitarvélum gagnvart tilteknum markhópum og breikka tekjugrunn félagsins. Frá síðastliðnu hausti hefur enn fremur verið hert verulega á kostnaðaraðhaldi innan félagsins.“
Bjöllur hringja við þennan lestur og ekki jólabjöllur. Af þessu má ráða að Icelandair hafi vitað frá síðasta hausti að allt væri á leið til mun verri vegar. Hvers vegna annars að draga saman segl nema af því að fellibylur er á leiðinni.
Góðu heilli er enginn úr ritstjórn Fararheill hluthafi í Icelandair, enda væri það gróft svindl gagnvart lesendum. En værum við hluthafar vildum við gjarnan vita hvers vegna stjórinn lét ekki vita strax í haust að voll væri framundan. Við erum jú hluthafar til að þéna seðla en ekki til að láta hafa okkur að fíflum með skyndilegri afkomuviðvörun mörgum mánuðum síðar!
Við vorkennum líka öllu því fólki sem fékk gjafabréf Icelandair í jólapakkann eða á sextíu milljón vildarpunkta. Hætt er við að Björgólfur sé nú ekki að fara að gera því fólki neinn greiða með „breytingum á uppbyggingu á fargjöldum og vöruframboði.“
Þótt hluthafar séu fjúkandi reiðir þá gleyma fjölmiðlar landsins að segja okkur frá jákvæðu punktunum við samdrátt hjá Icelandair. Þar langstærst að þetta batterí er allt of stórt fyrir litla Ísland og hefur allt of mikil ítök í viðskiptum á Íslandi. Þetta fyrirtæki ræður miklu um hver deyr og hver lifir í ferðaþjónustubransanum á landinu og það nýtir fyrirtækið sér í æsar. Hefur einhver þingmaður einhvern tímann þorað að nefna sem dæmi að fargjöld dótturfélagsins Flugfélags Íslands séu okur út í eitt? Hefur einhver nefnt að Icelandair reyndi sitt til að setja stól fyrir dyr Wow Air þegar það flugfélag flaug af stokkunum? Hefur einhver nefnt, annar en Fararheill, að þetta risafyrirtæki á íslenskan mælikvarða þykir greiða lúsarlaun? Einhver nefnt einokunartilburði Icelandair um árabil? Svo ekki sé minnst á þá staðreynd að fyrirtækið er á lífi þökk sé lífeyrissjóðsgreiðendum. Sömu lífeyrissjóðsgreiðendum og forstjóri Icelandair vill að fái lægri laun og borgi hærri skatta.
Nei, það hefur enginn gert. Það er lífsins ómögulegt að vorkenna einhverjum hluthöfum sem missa hundrað kall úr veskinu með niðurgangi Icelandair. Því minna virði sem fyrirtækið er því minna hefur það neikvæð áhrif á land og þjóð. Sem er jákvætt í alla staði fyrir þorra landsmanna.







