Hmm. Hvort ætti ég að bjóða lesendum mínum upp á gistingu gegnum lítið ástralskt fyrirtæki sem tekur litla þóknun eða tröllvaxið bandarískt skattaskjólsfyrirtæki sem heimtar feitustu þóknun í bransanum?

Túristi hefur nú slegist í hóp með Icelandair, Wow Air og Dohop og býður upp á gistingu gegnum skattaskjólsfyrirtæki.
Frá árinu 2009 hefur langstærsti og best lesni ferðavefur landsins, Fararheill, boðið lesendum sínum að bóka gistingu gegnum bókunarvef HotelsCombined. Eigendur hans eru fimm Ástralir sem blöskraði gríðarleg þóknun sem hótel og gististaðir urðu og verða að greiða risunum í bókunarbransanum fyrir að komast á lista. Þóknun sem ratar auðvitað beinustu leið á reikning ferðalanga sem fá líka mínus í kladda gistihúsaeigenda sem missa vænan spón úr aski til risanna. Sumir fá verri þjónustu fyrir vikið.
Árið 2011 náði fótfestu hér ferðavefurinn túristi.is. Sá ágætur að mörgu leyti, ef frá er talið nafnið sem er niðurlægjandi fyrir þorra ferðafólks, og vinsæll mjög ef marka má fésbókarlæk. Enda aðilar þar að baki að vinna fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og flugfélög en minna í þágu neytenda og ferðalanga.
Sá vefur byrjaði á að bjóða upp á gistingu gegnum Hotels.com, einn allra dýrasta bókunarvef sem fyrirfinnst. Eftir að við fjölluðum um okrið hjá Hotels á sínum tíma breytti túristi um kúrs og hóf að bjóða gistingu gegnum HotelsCombined eins og við. Gott mál í gulum umbúðum.
Spólum fram um örfá ár og nú hefur túristi ákveðið að bjóða lesendum sínum upp á gistingu gegnum Booking.com. Sama bókunarvef og Icelandair, Wow Air og Dohop státa sig af. Sá er vissulega einn sá vinsælasti í veröld enda fer lítið fyrir feitum mínusum við þann bókunarvef. Til dæmis þá staðreynd að eigandi Booking er Priceline sem aftur er eitt allra stærsta bandaríska fyrirtækið sem geymir fjármuni í skattaskjólum. Um það má lesa hér hjá Financial Times en fyrir þá sem ekki nenna Financial Times nægir að nefna að Priceline greiðir aðeins 19 prósenta skatt á heimsvísu þó að fyrirtækjaskattur í Bandaríkjunum sé 39 prósent.
Annar mínus við Booking er að fyrirtækið tekur heil 15 prósent í þóknun fyrir hverja bókun að lágmarki. Gististaðurinn þarf að greiða þá þóknun og ekki þarf stærðfræðiheila til að vita hvaðan gististaðurinn tekur þá fjármuni. Frá gestum sínum. Hotels.com er á svipuðu slóðum á milli 12% og 15% fyrir að lista gististað á sínum vef.
Til samanburðar er þóknun HotelsCombined sem við bjóðum uppá milli sex og átta prósent eftir stærð gististaðar. Aftur þarf engan stærðfræðiheila til að vita að helmingsmunur er þannig á þóknun Booking og þóknun HotelsCombined. Það er því helmingsmunur strax fyrir viðskiptavininn og gistihúsaeigandinn ánægðari með þig. Það bætast engin fimmtán prósent ofan á hótelreikninginn.
Ef skattaskjólsfyrirtækið Booking er enn í uppáhaldi hjá þér þrátt fyrir „skattalegt hagræði“ er tvennt sem óhætt er að muna. HotelsCombined leitar líka hjá Booking.com svona til öryggis þrátt fyrir allt. Þú missir því ekki af neinu. Hins vegar að gistimöguleikar hjá HotelsCombined eru tvöfalt fleiri en Booking býður upp á á heimsvísu.
Hættu að láta fífla þig. Eigðu viðskipti við aðila sem koma hreint fram við alla, greiða sitt til samfélagsins og þú kemur út í plús í þokkabót 😉







