Það er töluvert til marks um yfirborðsmennsku íslenskra fjölmiðla að sjaldan eða aldrei hefur flugfélagið Icelandair verið meira í fréttum en liðna viku og þá AÐEINS vegna þess að bréf hluthafa hafa rýrnað heil ósköp. Aldrei birtir neinn fréttir þess efnis að flugfélagið komi hörmulega fram við VIÐSKIPTAVINI sína eins og við höfum ítrekað sýnt fram á undanfarin ár. Nei, eigendur mun mikilvægari en viðskiptavinirnir.

Einn allra vinsælasti vefurinn vestanhafs og Icelandair barasta ekki mætt til leiks. Skjáskot

Sem er alls ekki eins og hlutirnir eiga að vera og ekki aðeins að okkar áliti heldur einnig samkvæmt helstu markaðs- og hagfræðingum. Fyrirtæki sem setja eigendur í fyrsta sætið og viðskiptavini þar á eftir mun ekki lengi verða lífdaga auðið. Ekki síst þegar forstjórinn sjálfur gerir hreint og beint gys að heilli kynslóð fólks þegar í harðbakka slær. Sömu kynslóð sem kaupir flug og ferðir jafn oft og eldri kynslóðir keyptu pylsur í matinn!

Ok, það segir okkur bara að fjölmiðlarnir ganga erinda fyrirtækja en ekki almennings og kemur engum á óvart með heilasellu í kolli. Fjölmiðlar spinna linnulaust með fyrirtækjunum og taka sér ítrekað stöðu gegn neytendum og samfélaginu.

Að gera og ekki að gera

Hluthafar Icelandair eru venjulega ekki í lesendahópi Fararheill eftir því sem við komumst næst. Icelandair hefur að mestu leyti hundsað langstærsta og best lesna ferðavef landsins og á köflum sent fólk til að fylgjast með skrifum okkar og gera instant athugasemdir á samfélagsmiðlum. Í stað þess að laga það sem hægt er að laga er reynt að þagga mál niður. Sem er annað atriði sem fyrirtæki ættu EKKI að gera samkvæmt ráðleggingum markaðsfræðinga. Þarf ekki markaðsfræðinga til heldur því gamalt orðatiltæki segir að vinur sé sá er til vamms segir. Sé það rétt er Fararheill LANGBESTI vinur Icelandair, Wow Air, Vita, Heimsferða, Úrval Útsýn og GB ferða svo fátt sé upp talið.

En fyrir hina ágætu hluthafa Icelandair sem enn trúa því að stjórn Icelandair sé með á nótum og að gamlir, hvítir karlar geti snúið flugfélaginu aftur á rétt ról með tilheyrandi auknum hagnaði er ágætt að tiltaka eitt dæmi sem bendir til að það sé ekki alveg raunin. Þar um að ræða bandaríska einkunnavefinn Yelp.

Yelp er ekki velþekktur vefur hérlendis en vestanhafs er þetta einn allra vinsælasti vefurinn og skal engan undra þegar um 25 milljón manns nota Yelp í hverjum einasta mánuði. Þetta er því eitt allra besta tól markaðsfólks til að koma til móts við neytendur og viðskiptavini í Bandaríkjum og Kanada.

Enginn vakandi hjá Icelandair

En hvað gerist þegar Icelandair er flett upp á Yelp? Þar má sjá að nokkrir tugir viðskiptavina flugfélagsins hafa tjáð sig um þjónustu Icelandair og sitt sýnist hverjum. Heilt yfir þykir Icelandair miðlungs flugfélag en nokkrir eru líka að forvitnast um hitt og þetta hjá flugfélaginu og hljóta vitaskuld engin svör því enginn er vaknaður við Nauthólsveg.

En það sem vekur risastóra athygli okkar er að enginn hjá Icelandair hefur haft fyrir því að skrá sig sem forsvarsmann fyrir flugfélagið eins og sjá á á meðfylgjandi skjáskoti. Icelandair er „unclaimed“ eins og þar stendur. Hér ágætt að hafa í huga að skrái fyrirtæki sig hér gefst fyrirtækinu kostur á að svara fyrirspurnum eða kvörtunum nú eða koma á framfæri skilaboðum. Kjörleið til að koma til móts við viðskiptavini og afla nýrra.

En nei, Icelandair ekkert að blæða í svoleiðis. Það sker jú í mögulegan hagnað hluthafa að vera á tánum gagnvart neytendum og viðskiptavinum og ekki viljum við stíga á keisarans tær þegar við sitjum í forstjórastóli flugfélags á markaði.

Fararheill í málið

Sök sér fyrir stjóra Icelandair að spara á öllum vígstöðvum til að hluthafar fái nú feitan seðil reglulega. Verra þegar hægt er að nýta þá nísku til að gera flugfélaginu grikk.

Við prófuðum því að skrá okkur hjá Fararheill sem forsvarsmenn Icelandair hjá ofangreindum bandarískum vef sem lesinn er af 25 milljónum mánaðarlega. Það sem meira er: við komumst upp með það líka 🙂 Yelp samþykkti okkur sem forsvarsmenn íslenska flugfélagsins 🙂

Við hefðum getað komið fram sem þjónustuliðar Icelandair og gert skráveifu par exellans gegnum Yelp. Verið ruddaleg við einkunnagjafa og kallað þá fávita og fífl. Það eru jú þannig svör sem gjarnan komast í fréttirnar vestanhafs. Við hefðum líka getað lofað öllum þeim sem fúlir eru fríum flugferðum í heilt ár sem miskabætur. Það líka hefði orðið fréttamál ef Icelandair hefði svo neitað að kannast við fríu flugferðirnar þegar á hólm var komið.

Í stuttu máli: vegna þess að Icelandair er ekki með á nótum er sáraeinfalt er koma fyrirtækinu illa á samfélagsmiðlum. Og það hlýtur að vera markaðsfræðingur hjá Icelandair sem veit að samfélagsmiðlar geta skipt milli lífs og dauða hjá fyrirtæki.

Vakna!