Ferðatilboð

Fimm stjörnu lúxus við Rauðahafið á 90 þúsund

  08/10/2012apríl 27th, 2013No Comments

Á þessum tímapunkti eru vafalaust þúsundir Íslendinga að blóta sumarlokum og að framundan séu lægðir á lægðir ofan með tilheyrandi leiðindum. En hvernig hljómar fimm stjörnu dúllerí á einkaströnd við Rauðahafið með öllu innifalið í desembermánuði og það fyrir litlar 90 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman?

Egypskt já takk. Húrrandi góður prís til Rauðahafsins í desember og auðvelt að skipta út illu veðri og verri vindum í steikjandi sól og blíðlegan andvara.

Þetta er eitt þeirra tilboða sem nú eru í boði hjá bresku ferðaskrifstofunni Voyager Travel en þar á bæ hafa menn skafið nokkra tugi þúsunda af verði vinsælla ferða sinna. Sérstaklega er eftirtektarvert að Egyptaland er ódýrt enda bráðvantar ferðamenn þangað nú þegar margir halda sig fjarri sökum alls þess sem gengið hefur þar á undanfarna mánuði.

Þeir atburðir tengjast þó ekki sældarlífinu við strendur Rauðahafsins og alls engar fregnir borist af neinum vandræðum þar. Enda vita jafnvel heittrúaðir múslimar landsins vel að stór hluti efnahags Egyptalands veltur á ferðafólki. Án þeirra er landið komið úr ösku í eldinn.

Auðvitað miðast 90 þúsund króna prísinn við ferðir frá Bretlandi og Gatwick flugvelli nánar tiltekið. En til Gatwick hefur verið komist undanfarið ansi oft á tilboðsverði með Iceland Express, Wow Air og jafnvel Icelandair líka fyrir utan reglulegt flug easyJet til Luton. Ef við gefum okkur að far báðar leiðir á einstakling fáist fyrir 30 þúsund krónur hækkar verð þessarar ferðar í 120 þúsund eða 240 þúsund fyrir tvo.

Fararheill skorar á fólk að finna sjö daga sólarferð á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu á því verði hjá innlendum ferðaskrifstofum. En þú mátt leita lengi því ekkert slíkt er í boði eða við étum alla hatta okkar hér á ritstjórn.

Nánar um tilboð Voyager hér.

* Miðað við miðgengi krónu gagnvart bresku pundi 8. október 2012.