Súrara en melónujógúrt í helvíti að missa fyrirtæki sitt og draum í hendur þeirra sem þú barðist hvað mest gegn. Það örlög Skúla Mogensen og fyrirtækis hans Wow Air þennan daginn. Samt engin ástæða til að syrgja þá þróun mála. Mogensen einn þeirra sem lærði ekki neitt af Hruninu.

Allt fansí og fínt. En var í raun ekki fansí og fínt. Íslenskir fjölmiðlamenn ekki lært einn staf af Hruninu 2008

Gredda og hortugheit er dálítið 2008 ekki satt. Allir þessir flottu bankastjórar og milljarðarmæringar sem fengu kampavín í morgunmat, réðu stórstjörnur til að syngja afmælissöng í partíinu og geymdu sína milljarða í skattaskjólum á eyjum í Karíbahafi sem varla finnast á korti.

Þetta lið þótti afar móðins meðal misvitra fjölmiðlamanna sem oft fengu boð um hitt og þetta frá milljarðamæringunum og tóku óbeint þátt í veislunni með súperflottum þvælugreinum í kjölfarið.

Skúli Mogensen einn þeirra sem fékk súperþjónustu hjá fjölmiðlafólki. Fjölmiðlafólki sem man ekki hvað gerðist í gær og hvað þá hvað gerðist árið 2008.

Skoðum nokkur dæmi:

Skúli Mogensen markaðsmaður ársins

Wow Air sennilega stærra en Icelandair á næsta ári

Skúli aldrei verið flottari fimmtugur

Wow Air tryggir fjármögnun út árið 2019

Wow Air mun sækja fram og er komið til að vera

Skúli metur Wow Air á minnst 44 milljarða

Skúli Mogensen hinn íslenski Musk

Skúli: Frábærir tímar framundan

Skúli Mogensen með stjörnugleraugun

Amms. Allt flott, fágað og stórkostlegt sem herra Mogensen gerði, tók sér fyrir hendur eða snerti síðustu sex árin eða svo.

Berum ofangreint saman við nokkrar greinar okkar á sama tímabili:

Sérdeilis merkilegar afsakanir Wow Air

Til hamingju Skúli: Wow Air versta flugfélag heims árið 2018

Miskunnarlausi Samverjinn er íslenskur

Ef kaffihús notuðu sömu trix og Skúli Mogensen

Kanadamenn undirbúa líka hópmálsókn á hendur Wow Air

Flugvélar Wow Air að mestu í eigu skattaskjólsfyrirtækja

Samúð eða sveigjanleiki? Ekki til að tala um hjá flugfélagi Mogensen

Og svo framvegis og svo framvegis…

Eða hvaða heilbrigður eigandi/forstjóri fyrirtækis gengur út frá því að það verði uppsveifla 24/7 að eilífu og rekur fyrirtækið samkvæmt því???

Icelandair enn með varamann af bekknum í forstjórastöðu og teygir sig lengra en nokkru sinni áður í þeirri stöðu…

Með öðrum orðum; íslenskir fjölmiðlar létu aftur hafa sig að fíflum með því að taka þátt í partíinu. Partíi sem enginn fótur var fyrir eins og fregnir dagsins bera með sér.

En er Icelandair að gera gott mót með því að taka yfir Wow Air?

Hlutabréf Icelandair tóku risastökk upp á við í dag. Fjárfestar sjá fyrir sér að dugmikið Icelandair fari létt með að rúlla Wow Air inn í viðskiptamódelið og hagnist duglega strax á morgun.

En við höfum efasemdir. Sem er ástæða þess að við hér keyptum bréf í fyrirtækinu þann 15. september en ekki í dag. Hvaða efasemdir kann einhver að spyrja?

Jú, það vita allir sem fylgst hafa með #metoo byltingunni að of mikil gredda getur gert út af við fólk og fyrirtæki og það á örskotsstundu. Hér óhætt að hafa hugfast að það er vel uppi typpið hjá Icelandair líka. Ekki aðeins er flugfélagið að kaupa nokkrar nýjar fokdýrar farþegaþotur heldur og að taka yfir ríkisflugfélag Grænhöfðaeyja í ofanálag við yfirtökuna á Wow Air.

Einhver þarna úti sem telur það of mikið af því góða eins og við höldum? Sama Icelandair og hefur útvistað bókhaldi sínu til Litháen og þjónustuverinu til Asíu ætlar allt í einu að reka ÞRJÚ FLUGFÉLÖG í stað eins án þess að blikka auga eða tapa eyri.

Þegar haft er hugfast að forráðamenn Icelandair hafa ekki beint haft sitt á þurru síðasta árið meðan hlutabréf í flugfélaginu hafa hrapað hraðar en æra Geirs H. Haarde í Hruninu, er verulega galið að halda að framtíðin sé smurð og skorin og peningarnir muni flæða inn án þess að menn lyfti litlafingri.

Til dæmis þetta:

Wow Air hafði töluvert góða stöðu í Leifsstöð sem Icelandair tekur nú yfir. En, erlend flugfélög sem hingað fljúga og hafa hingað til þurft að henda farþegum sínum út í rútur skammt frá Sandgerði, gera ábyggilega athugasemdir við að eitt og sama flugfélagið eigi nú alla bestu tímana við Leifsstöð.

Annað sem skiptir hér máli er að Wow Air skuldar hundruðum, ef ekki þúsundum, farþega sinna bætur vegna tafa og vesens síðustu misserin. Icelandair verður nú að standa skil á þeim kröfum sem skipta milljónum króna hið minnsta og mögulega líka greiða hundruð milljóna sem Wow Air kann að skulda Isavía svo fátt eitt sé talið.

Munu flugfargjöld hækka í kjölfar þessa?

Eitt hundrað prósent. Það þó ekki alfarið yfirtökunni að kenna. Forráðamenn Icelandair eru að sjálfsögðu að baða sig í kampavíni og taka kavíar í nasir nú þegar helsti samkeppnisaðilinn er undir þeirra stjórn. En jafnvel með það í huga þá þurfa flugfargjöld að hækka lítið eitt þó ekki sé nema til þess að flugfélögin hangi á horriminni. Ekki aðeins þau íslensku heldur öll vestræn flugfélög.

Það út af fyrir sig ekki slæmar fréttir. Flugfélög sem ekki hagnast geta illa eytt feitum fjárhæðum í laun starfsfólks eða viðgerðir á vélum sínum. Þau líklegri en hin að skera starfsfólk við nögl og láta sig hafa flug þó örlítil sprunga sé í framrúðunni.

Wow Air gat aldrei toppað erlend lággjaldaflugfélög

Að síðustu þetta: Allan þann tíma sem Wow Air starfaði gat flugfélagið aldrei toppað lægstu fargjöld evrópskra lággjaldaflugfélaga sem flugu til og frá Íslandi. Allra, allra lægstu fargjöld Wow Air kostaðu sex til sjö þúsund krónur aðra leið út. Á sama tíma hafa flugfélög á borð við Germania, Transavia, easyJet og Norwegian boðið landanum flug aðra leiðina út allt niður í fjögur til fimm þúsund krónur lægst.

Munurinn helgast ábyggilega af háum launum íslensks starfsfólks Wow Air miðað við laun starfsmanna erlendra flugfélaga. Sem er jákvætt. Fólk á að fá mannsæmandi laun hvar sem það starfar og ekki síst flugstjórar og flugþjónar sem þurfa að eyða drjúgum tíma erlendis fjarri fjölskyldum og vinum.

Eftir því sem við komumst næst hefur starfsfólk Wow Air almennt verið sátt við sín kjör en hið sama verður ekki sagt um starfsfólk Icelandair. Nú eru eflaust tugir starfsmanna Icelandair að skoða kjör tuga starfsmanna Wow Air á tekjur.is og komast að því að þar er munur á.

Kálið ekki endilega sopið þó í ausuna sé komið…